Icelandic English French German Polish Spanish
Borði

Úr senunni: Fréttir af Adam Ondra, Dai Koyamada og fleira

Úr senunni: Fréttir af Adam Ondra, Dai Koyamada og fleira

 

Dai Koyamada endurtekur "The story of 2 worlds"

 

Bjorn Pohl sagði frá því á blogginu sínu að Dai Koyamada hafi endurtekið "The story of 2 worlds" V15 sem var upprunalega klifruð af Dave Graham í Janúar 2005. Dai er sá fyrsti sem endurtekur þessa leið og það eru flottar myndir á blogginu hans Dai af leiðinni.

 

Dave Graham vildi meina að þessi leið væri nýji standardinn fyrir V15 og í kjölfarið þá lækkaði hann gráðuna á flestum erfiðum leiðum sem hafði klifrað á 8a listanum sínum.

 

Adam Ondra í UKClimbing.com

 

Adam Ondra í UKÞað er viðtal við Adam Ondra á UKClimbing.com. Þessi 17 ára, efnilegi snillingur er líklega sá klifrari sem hvað mestar væntingar eru gerðar til á komandi árum. Margir trúa því að hann eigi eftir að færa klifur á nýjar slóðir, sérstaklega hvað varðar erfiðleikastig, en hann hefur verið að endurtaka einar erfiðustu sportklifurleiðir heimsins undanfarin misseri.

 

Í viðtalinu er hann spurður út í ferðina sína til Bretlands, þar sem hann endurtók leiðirnar North Star 9a og Northern Lights 9a sem Steve McClure setti upp, ásamt því að "onsighta" helling af 8a og 8b leiðum. Hann reyndi einnig við Overshadow 9a+, sem gekk ekki upp, en hann er staðráðinn í að reyna hana aftur einn góðan veðurdag.

 

Video klippa af Ondra að reyna að onsighta "Energy Vampire":

 

 

Hér er video af Steve McClure að klifra Rainshadow og fleiri klippur frá Kilnsey og Malham Cove:

 

Daila Ojeda klifrar 8a og 8b

 

Daila Ojeda, kærasta Chris Sharma fellur oft í skuggann á meistaranum, en hún var að enda við að klifra tvær góðar leiðir í Margalef: "La Perdonavidas" 8a í annari tilraun og "Xiketeta" 8b.

 

Alex Hannold klifrar "Original Route" án búnaðar

 

Geðsjúklingurinn Alex Hannold klifraði á dögunum 304 metra leiðina "Original Route" 5.12b ásamt fleirum án búnaðar (free soloing). Nánar á Climbing Narc

 

Álit 

 
0 #3 Jonni 2010-05-16 18:05
Fíla að fá svona samantekt, þetta er osömlí næs :)
Tilvísa
 
 
0 #2 Örvar Dóri R. 2010-05-16 17:02
Nice! Gaman að hafa myndbönd með í greinunum!

Btw.. Djöfull groundar adam næstum því!!!!
Tilvísa
 
 
0 #1 Jafet 2010-05-13 17:19
Flott grein :D
Tilvísa
 

Skrifa álit


Öryggiskóði
Endurhlaða

Klifur.is ©