Icelandic English French German Polish Spanish
Borði

Warning: getimagesize(images/stories/valdi.jpg) [function.getimagesize]: failed to open stream: No such file or directory in /home/klifuris/public_html/plugins/content/smartresizer.php on line 189

Erfiðasti Boulderprobbi á Íslandi klifraður!

Erfiðasti Boulderprobbi á Íslandi klifraður!

Þann 19. júní gerðust merk tímamót á Hnappavöllum þegar hann Valdimar Björnsson klifraði Kamar probbann 7C+ (8a?) sem er erfiðasta boulderleið á Íslandi. Kamar probbinn er staðsettur fyrir aftan hinn víðfræga kamar á Hnappavöllum. Settur hefur verið upp bolti fyrir ofan leiðina og fór Valdi hana í toprope, hins vegar er beðið eftir hetju sem vill láta ljós sitt skína og high ball-a hana þar sem leiðin er 7m.

 

Undanfarin ár hefur áhuginn á boulderi farið stig vaxandi. Margir nýjir probbar hafa verið klifraðir og mörg ný boulder klifursvæði uppgötvuð, þar má nefna Vaðalfjöll sem er talið vera eitt besta bouldersvæðið á Íslandi þótt ekki sé langt síðan klifrarar byrjuðu að klifra þar á fullu.

 

Til hamingju Valdi með þennan merka sigur og við bíðum öll spennt eftir 8a eða 8a+.

Álit 

 
0 #7 Jafet 2010-07-13 21:41
Ég er alveg til að smíða eitthvað. Verð á Hnappavöllum eitthvað næstu helgar og um Verslunarmannah elgina.
Tilvísa
 
 
+1 #6 Jón Viðar Sigurðsson 2010-07-06 10:25
Valdi vann eins og hestur daginn fyrr við að smíða og setja þak á Tóftina. Greinilega rétta upphitunin sem þarf til að klára svona dæmi.
Hverjir eru til í smá vinnu?

Aftur til hamingju Valdi. Þú ert snillingur.
Tilvísa
 
 
0 #5 Arnór Heiðar 2010-07-04 22:27
Já, ég er sammála Jafet. Allavega er allt gráðað mun harðar á íslandi en í Indlandi, samt voru klifrararnir þar að kvarta undan gráðunum þar líka...

Annars hef ég ekkert með það að skipta mér af þessu. Kemur mér ekki við. Sá sem klifrar ræður :P

Allavega heví flottur probbi!!!

Æðislegt að vita af honum þarna sem langtíma (10 ár?) markmið!
Tilvísa
 
 
0 #4 Jafet 2010-07-04 19:17
Það væri kúl ef Kamarprobbinn væri svona viðmiðunarprobb i fyrir 8a leiðir á Íslandi. Þegar hefur verið eitthvað vafamál hvaða gráðu leið á að fá hef ég yfirleitt valið erfiðari gráðuna vegna þess að leiðir á Íslandi hafa átt það til að vera undirgráðaðar.
Tilvísa
 
 
0 #3 Arnór Heiðar 2010-07-03 17:34
Uhh.. sama hvort þessi probbi sé 8a boulder eða ekki, þá verður hann eiginlega að vera gráðaður það, bara svo það sé hægt að segja að Ísland sé á "boulder kortinu". Hægt að downgreida hann seinna, ef margir klifra hann :P

Ef það er ekki 8a boulder leið á einhverjum stað, þá langar engum að koma að bouldera þar :)

Er ekki annars markmiðið að það fyllist allt af klifurtúristum að tickmarka alla steina :P
Tilvísa
 
 
+2 #2 Valdimar björnsson 2010-07-01 15:19
Takk fyir hrósin og takk kamar probbi fyrir að leifa mig að klifra uppá þig :)
Anna hans Bjössa náði myndir og video. Ég kem með þær a.s.a.p :) :) :)
Tilvísa
 
 
0 #1 Árni Stefán 2010-06-30 22:28
Til hamingju með það Valdi.
Náði einhver vídjói af þessu?
Tilvísa
 

Skrifa álit


Öryggiskóði
Endurhlaða

Klifur.is ©