Icelandic English French German Polish Spanish
Borði

Sasha DiGiulian

Sasha DiGiulian

Ef þið hafið ekki heyrt á þetta nafn minnst, ættuð þið að leggjast í smá rannsóknarvinnu.

 

Þessi 18 ára stelpa frá Bandaríkjunum hefur nú klifrað sína fyrstu 9a (5.14d) leið. Það gerði hún í Red River Gorge í Bandaríkjunum nú fyrir örfáum klukkutímum. Það tók hana ekki meira en 3 daga og 6 tilraunir svo það má búast við enn stærri afrekum frá þessari stelpu í náinni framtíð. Sasha er þar með þriðja konan til þess að klifra leið af þessu erfiðleikastigi en áður hafa Josune Bereciartu og Charlotte Durif náð þessum frábæra árangri. 

 

Áfram konur/stelpur !!!!!!

Álit 

 
+1 #3 Jafet 2011-10-17 11:16
Það væri algjör draumur í dós :D

Stefnum bara á þetta. Sættum okkur ekki við neitt minna en veggi eins og eru í þessu myndbandi!
Tilvísa
 
 
+2 #2 Þórður Sævarsson 2011-10-17 10:27
Skemmtilegur linkur Jafet. Hvernig væri að fá svona æfingaaðstöðu upp hér á landi!
Tilvísa
 
 
+1 #1 Jafet 2011-10-16 13:28
Mæli með þessu:

(The Insiders)
http://www.youtube.com/watch?v=Ml-rxMwcaf0
Tilvísa
 

Skrifa álit


Öryggiskóði
Endurhlaða

Klifur.is ©