Icelandic Czech English Finnish French German

Hörzl við Hauga

Klifursvæðið er í nokkrum sprungum í hrauninu. Sprungurnar eru fullar af sandi og eru klettarnir vel slípaðir af honum. Klifursvæðið er mjög sérstakt og fallegt og skjólsælt er í sprungunum.

 

Klifursvæðið er nýfundið en þegar eru komnar um 25 skráðar leiðir. Hraunið er mjög stórt og eflaust leynast þarna fleiri sprungur sem er hægt að klifra í.

Leiðarlýsing

Frá Reykjarnesbraut er best að fara á Hafnarveginn til að komast að klifursvæðinu. Eftir nokkra keyrslu á Hafnarvegi og Nesvegi sér maður virkjun á hægri hönd. Þar er farið til vinstri inn á línuveg. Línuvegurinn er ekinn í rúma 4 km þangað komið er að mastri númer 15. Þaðan er svo um 5 mín. ganga að klifursvæðinu.


Vegalengd frá Reykjavík:
65 km. 40 miles
48 mín.

Leiðarvísir

Myndir

Kort


View Rock climbing - Iceland in a larger map
Klifur.is ©