Borði

Erfiðasti Boulderprobbi á Íslandi klifraður!

Erfiðasti Boulderprobbi á Íslandi klifraður!

Þann 19. júní gerðust merk tímamót á Hnappavöllum þegar hann Valdimar Björnsson klifraði Kamar probbann 7C+ (8a?) sem er erfiðasta boulderleið á Íslandi. Kamar probbinn er staðsettur fyrir aftan hinn víðfræga kamar á Hnappavöllum. Settur hefur verið upp bolti fyrir ofan leiðina og fór Valdi hana í toprope, hins vegar er beðið eftir hetju sem vill láta ljós sitt skína og high ball-a hana þar sem leiðin er 7m.

 

Undanfarin ár hefur áhuginn á boulderi farið stig vaxandi. Margir nýjir probbar hafa verið klifraðir og mörg ný boulder klifursvæði uppgötvuð, þar má nefna Vaðalfjöll sem er talið vera eitt besta bouldersvæðið á Íslandi þótt ekki sé langt síðan klifrarar byrjuðu að klifra þar á fullu.

 

Til hamingju Valdi með þennan merka sigur og við bíðum öll spennt eftir 8a eða 8a+.

Umsagnir 

 
0 #7 Jafet 2010-07-13 21:41
Ég er alveg til að smíða eitthvað. Verð á Hnappavöllum eitthvað næstu helgar og um Verslunarmannah elgina.
Tilvísa
 
 
+1 #6 Jón Viðar Sigurðsson 2010-07-06 10:25
Valdi vann eins og hestur daginn fyrr við að smíða og setja þak á Tóftina. Greinilega rétta upphitunin sem þarf til að klára svona dæmi.
Hverjir eru til í smá vinnu?

Aftur til hamingju Valdi. Þú ert snillingur.
Tilvísa
 
 
0 #5 Arnór Heiðar 2010-07-04 22:27
Já, ég er sammála Jafet. Allavega er allt gráðað mun harðar á íslandi en í Indlandi, samt voru klifrararnir þar að kvarta undan gráðunum þar líka...

Annars hef ég ekkert með það að skipta mér af þessu. Kemur mér ekki við. Sá sem klifrar ræður

Allavega heví flottur probbi!!!

Æðislegt að vita af honum þarna sem langtíma (10 ár?) markmið!
Tilvísa
 
 
0 #4 Jafet 2010-07-04 19:17
Það væri kúl ef Kamarprobbinn væri svona viðmiðunarprobb i fyrir 8a leiðir á Íslandi. Þegar hefur verið eitthvað vafamál hvaða gráðu leið á að fá hef ég yfirleitt valið erfiðari gráðuna vegna þess að leiðir á Íslandi hafa átt það til að vera undirgráðaðar.
Tilvísa
 
 
0 #3 Arnór Heiðar 2010-07-03 17:34
Uhh.. sama hvort þessi probbi sé 8a boulder eða ekki, þá verður hann eiginlega að vera gráðaður það, bara svo það sé hægt að segja að Ísland sé á "boulder kortinu". Hægt að downgreida hann seinna, ef margir klifra hann

Ef það er ekki 8a boulder leið á einhverjum stað, þá langar engum að koma að bouldera þar :)

Er ekki annars markmiðið að það fyllist allt af klifurtúristum að tickmarka alla steina
Tilvísa
 
 
+2 #2 Valdimar björnsson 2010-07-01 15:19
Takk fyir hrósin og takk kamar probbi fyrir að leifa mig að klifra uppá þig :)
Anna hans Bjössa náði myndir og video. Ég kem með þær a.s.a.p :) :) :)
Tilvísa
 
 
0 #1 Árni Stefán 2010-06-30 22:28
Til hamingju með það Valdi.
Náði einhver vídjói af þessu?
Tilvísa
 

Skrifa álit


Öryggiskóði
Endurhlaða

Klifur.is ©