Icelandic Czech English Finnish French German

Maríuhellar

Hægt er að klifra nokkrar leiðir hjá Maríuhellunum. Klifursvæðið er lokað af til allra átta þannig að mjög gott skjól er á svæðinu. Á svæðinu eru um átta grjótglímuleiðir sem eru allar í yfirhangi og engin undir 6a. Bergið er mjög hvasst en engu að síður fínt klifur.

 

Ef maður kíkir á svæðið er um að gera að taka með sér vasaljós og kíkja á Maríuhellana. Hjá klifursvæðinu eru tveir skútar sínhvorumegin og svo er stór hellir hjá opi á öðrum skútanum. Til að komast í hann þarf að klifra ofan í litla holu áður en maður kemst inn í sjálfan hellinn.

Leiðarlýsing

Á gatnamótum Elliðarvatnsvegs og Heiðmerkurvegs eru bílastæði fyrir fólk sem er að skoða hellana. Þú þarf ekki að ganga langt til að finna klifursvæðið.


Vegalengd frá Reykjavík:
11 km. 6.8 miles
12 mín.

Myndir

Kort


View Rock climbing - Iceland in a larger map
Klifur.is ©