Icelandic Czech English Finnish French German

Pöstin

Í klettunum í Pöstinni eru 9 boltaðar leiðir sem eru 10-25 metra háar. Klettarnir sem eru gamlir sjávarklettar eru fallega mótaðir og klifrið þar er mjög skemmtilegt. Lengst af voru aðeins þrjár boltaðar leiðir á svæðinu (Perestrojka, Geirvartan og Langi seli) en núna hefur svæðið verið tekið í gegn, leiðirnar endurboltaðar og settar upp 6 nýjar leiðir.

Klifursvæðið er á landareign bóndans á Hvammi og hann hefur gefið klifrurum leyfi til að klifra þarna með því skilyrði að umgengni sé góð.

 

Leiðarlýsing

Klettarnir eru norðan megin við þjóðveg 1. Til að komast að svæðinu er ekið inn afleggjarann hjá Hvammi og svo til hægri á vegslóða sem tekur mann nánast upp að klettunum.


Vegalengd frá Reykjavík:
133 km. 82.6 miles
95 mín.

Leiðavísir

Myndir

Kort


View Rock climbing - Iceland in a larger map
Klifur.is ©