Stardalur
Það má segja að Stardalur sé hjarta dótaklifurs á Íslandi. Klifrað hefur verið í Stardalshnjúk frá árinu 1978 og var það stærsta og vinsælasta klifursvæði landsins þar til Hnappavellir fundust. Þar má t.d. finna erfiðustu dótaklifurleið landsins, Sónötu.
Í Stardal er einungis klifrað með dóti, kletturinn er úr stuðlabergi og býður upp á mörg erfiðleikastig.
Allir ættu að geta fundið gæða sprunguklifur af öllum erfiðleikum við sitt hæfi.
Frekari upplýsingar eru í leiðarvísinum hér til hliðar.
Leiðarlýsing
Leiðarlýsing í leiðarvísi hér til hliðar.
| Vegalengd frá Reykjavík: | |
![]() |
29 km. 18 miles |
![]() |
27 mín. |



