Strandgata
Í miðbæ Hafnarfjarðar er klettabelti sem varð til eftir að sprengt var þar fyrir Strandgötunni fyrir löngu síðan. Nú eru þar um 20 grjótglímuklifurleiðir og er þar á meðal hin fræga Reykjavíkurperla sem er ein erfiðasta grjótglímuleið á höfuðborgarsvæðinu.
Við mælum með því að fara ekki upp á klettana því þar geta verið lausir steinar sem geta oltið niður.
Leiðarlýsing
Finndu Strandgötuna og þar finnur þú klifursvæðið sem er staðsett við hliðina á Fjörukránni.
Best er að leggja bílnum á bílastæðum fyrir aftan Fjörukrána.
| Vegalengd frá Reykjavík: | |
![]() |
11 km. 6.8 miles |
![]() |
10 mín. |













