Icelandic English French German Polish Spanish

Valshamar

Valshamar er lítið klifursvæði í Eilífsdal í Kjósinni. Það hefur verði klifrað þar í rúmlega 30 ár eða frá 1978. Þetta svæði er afar heppilegt fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í klettaklifri og er það mikið nýtt á sumrin. Leiðirnar eru 8 til 20 metra háar og allt frá 5.4 upp í 5.11d. Nánari upplýsingar um svæðið er að finna í leiðarvísinum.

 

Svæðið er rétt fyrir ofan sumarbústaðabyggð og eru klifrarar beðnir um að sýna íbúum þar virðingu. Öskur og hávaði berst vel um dalinn og þess vegna ágætt að geyma öskrin fyrir Klifurhúsið.

Leiðarlýsing

Keyrt er inn Hvalfjörðinn og beygt inn í Miðdal. Eftir rúmlega 7 km leið er komið að skilti sem stendur á Valshamar sem bendir á sumarhúsabyggðina. Eftir stutta keyrslu á veginum er lítið skilti til vinstri merkt VALSHAMAR KLIFURSVÆÐI. Þar tekur við vegur sem getur verið erfiður í keyrslu á fólksbíl. Þið fylgið þeim slóða þar til komið er að litlu bílastæði. Ath. Bílnum er lagt inni á landi í einkaeigu og inná því eru lausir hestar. Hestarnir eiga það til að rispa bíla sem lagt er inná svæðinu og er þess vegna búið að koma fyrir lítilli girðingu sem hægt er að leggja bílnum í. Gengið er upp að hamrinum þaðan og tekur gangan u.þ.b. 15 mínútur.

Stundum er hliðið að sumarbústaðarbyggðinni opið en klifrarar hafa oft lent í því að læsast þar inni. Vegurinn er líka einkavegur og á maður þess vegna ekki að aka þar inn.

 

Vegalengd frá Reykjavík:
45 km.
36 mín.

Leiðarvísir

Myndir

Myndir: Björgvin Hilmarsson

Kort


View Rock climbing - Iceland in a larger map
Klifur.is ©