Grjótglíma í Akrafjalli
Nokkur myndbrot úr Akrafjalli. Þar er ágætis grjótglímusvæði og alltaf sól og blíða.
Leiðir:
Snæfellsjökull 6a
Upp í hellinn 5c
Kuldaboli 6c
Besta leiðin 6c
Puscifer 6c
Hetjur gleymast aldrei
Í dag, 31.ágúst 2012, eru liðin 20 ár frá því að klifurgoðsögnin Wolfgang Güllich dó. Güllich var hvað þekktastur fyrir djörf “free solo” sín, en hann var einnig mikill frumkvöðull a sviði sportklifurs.
Güllich á heiðurinn af fjöldanum öllum af erfiðum leiðum og var hann til að mynda fyrstur til að klifra leiðir af gráðunum 8b (1984), 8b+ (1985), 8c (1987) og 9a (1991). Þekktasta klifurafrek hans er almennt talið vera leiðin Action Directe 9a í Frankenjura, en til að klifra hana þróaði hann sérstaka æfingatækni sem í dag gengur undir heitinu Campus. Leiðin er enn þann dag í dag talin vera í hópi erfiðustu leiða heims.
Hann fékk hlutverk í kvikmyndinni Cliffhanger sem áhættuleikari Sylvester Stallone þar sem hann framkvæmdi klifuratriði myndarinnar.
Wolfgang Güllich lést 31 árs að aldri af völdum bílslyss í Þýskalandi.
Valdimar búlderar 8A
Valdimar Björnsson hefur klifrað búlderprobban Olivine og gefið honum gráðuna 8A. Leiðin er staðsett á Hnappavöllum og gerir þetta hana að einum af erfiðustu búlderprobbum Íslands. Á 8A prófílnum sínum segir hann: “8A vegna þess að það tòk mig àr að klàra hann og með um 100 tilraunir.” ,og þar sem Valdi er nú þekktur fyrir að klifra hluti frekar fljótt og auðveldlega er deginum ljósara að þessi leið er í erfiðari kantinum.
Heiðmerkur búlder
Heiðmörk is a forestry and nature reserve close to Elliðavatn east of Reykjavik. This area´s the largest outdoor recreation in the vicinity of the city, about 32 square kilometers. Almost 90% of the area is sparsely vegetated land, of which about 20% of cultivated forests and 20% wild birch woods and scrub.
The bouldering there is on good solid rock and has ok landings. The cliffs are formed in a fault zone which stretches from the same fissure swarm as in Krýsuvík on the reykjanes peninsula. There is also a camping place there in hjallaflatir and its the only camping spot in heiðmörk. Also, about 80 meters right of hjallabumban there is another cliff that has one highball called Laumufarþegi and a travers named Innskotið. To the left about 100 meters there is a nice travers called flatahliðrun and its about 6c.
Leiðir:
Hársbreidd 7a+
Great balls of fire 6b+
Hjallabumban 6a
Útfyrirendimörkalheimsins
Hér er video af Eyþór að klifra í Magic Wood og Cresciano í Sviss.
Eyþór og Hrefna hafa nú verið í flakki víða um Evrópu síðan lok mars. Hægt er að lesa meira á bloggsíðu þeirra utfyrirendimorkalheimsins.wordpress.com.
VAÐALFJÖLL 2012
Tungufell
Nýtt klifursvæði hefur bæst í hóp klifursvæða á Klifur.is. Svæðið heitir Tungufell og er staðsett á Snæfellsnesi. Svæðið er um 300-400 metra langt stuðlabergs klettabelti með klettum sem eru um 10 metra háir. Tungufell svipar mikið til Gerðubergs sem er í rúmlega 50 kílómetra fjarlægð.
Texti og myndir eru frá Leifi Harðarsyni.
Eðlustökkið
Nýjar leiðir í Pöstunum
Síðastliðinn sunnudag klifruðum undirritaður, Gulli, Manuela og Robbi í Pöstunum undir Eyjafjöllum. Það væri þó ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að við hreinsuðum, boltuðum og klifruðum tvær nýjar leiðir.
Önnur leiðin liggur á horninu hægra megin (austan) við leiðina Vippan og hefur fengið nafnið Testósterón jóga. Erfiðleikinn er á bilinu 5.10a/b. Hin leiðin, Hornafræði alþýðunnar, er hægra megin (austan) við leiðina Sóley og er ca. 5.9.
BÍS mót í Klifurhúsinu
Vestrahorn
We took a road trip to this place last summer and the two day bouldering session turned out to be more than we expected!
This place offers great bouldering and if you dont want to go there just to climb boulders then you have trad and sport multipitch cliffs to treat your nerves with.
Vestrahorn is the biggest Gabbro intrusion in iceland.
Leiðir:
Mr. X 6b
Kjarra dyno 6b+
Svartbakur 7c
Two against nature 7b
Grjót löndun 7b
Eggið 7a
Klifur.is pakkinn
Hátt í Vaðalfjöllum
Red Alert
Nokkrar frá Háabjalla
Skoðuðum Háabjallaklettana og klifruðum aðeins. Við enduðum daginn með smá göngutúr.
Klifurhúsið 4. mót – 2010
Það má með sanni segja að Valdi og Hjalti Rafn hafi sett upp frábærar leiðir fyrir fjórða og síðasta klifurmót vetrarins sem var haldið í blíðskapar verði innan veggja Klifurhússins í dag. Þátttakan góð en klifrið betra!
Fyrsta ferð í Vaðalfjöll 2010
Skoðunarferð í Akrafjallið
Klifrað var á grjótglímusvæði við rætur Akrafjalls um helgina. Lítið hefur verið klifrað á svæðinu og voru margar nýjar leiðir klifraðar, þar á meðal Besta leiðin 6c, sem þykir vera mjög skemmtileg. Nýju leiðirnar hafa þegar verið settar inn á Klifur.is.
Nokkuð var um mosa á óklifruðum leiðum og var þess vegna gott að hafa með sér góðan vírbursta til að hreinsa hann í burtu.
Klifursvæðið var auðvelt að finna þar sem það er á fyrstu klettunum sem komið er að þegar ekið er upp að fjallinu. Eftir að hafa klifrað í nokkurn tíma ákvað hópurinn að ganga aðeins um svæðið og athuga hvort meira klifur væri á svæðinu. Þegar horft er yfir svæðið sér maður að þarna er heill hellingur af klettum en þó fannst ekki mikið af klifurleiðum í þessum göngutúr sem var frekar svekkjandi.
Enginn af gestunum höfðu áður klifrað á klifursvæðinu og voru allir ánægðir með daginn og ánægðir með svæðið þó að ekki hafi fundist mikið klifur ofar í brekkunum. Ekki er þó öll von úti því göngutúrinn náði engan veginn að klára allt svæðið og er alveg óhætt að mæla með þessu svæði.