Klifurhúsið
Heimilisfang: Skútuvogur 1G
Sími: 553-9455
Heimasíða www.klifurhusid.is
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Í Klifurhúsinu er hægt að æfa grjótglímu og eru þykkar dýnur undir öllum veggjum þannig að nóg er að vera með klifurskó og kalkpoka. Þennan búnað er hægt að fá leigðan á staðnum.
Til viðbótar við klifuraðstöðuna er lyftingaraðstaða þannig að þeir sem vilja lyfta með klifrinu þurfa ekki að fjárfesta í korti í ræktina líka. Einnig er þrekhjól, dýnur, teygjur og annað þess háttar á staðnum.
Sjoppan í Klifurhúsinu selur flest allan búnað sem þarf til þess að stunda grjótglímu og sportklifur. Frekari upplýsingar um vöruúrvalið er að finna á hér.
Opnunartími
Mánudagar-fimmtudagar: 17-22
Föstudagar: 16-21
Laugardagar og sunnudagar: 12-18*
*Lokað um helgar á sumrin.
Verð
1 skipti 12 ára og yngri: 500 kr.
1 skipti 13 ára og eldri: 700 kr.
10 skipti: 6.000 kr.
1 mánuður: 4.100 kr.
3 mánuðir: 10.900 kr.
6 mánuðir: 18.000 kr.
Árskort: 25.000 kr.
Leiga á skóm: 200 kr.
Sjá nánar um verð á heimsíðu Klifurhússins










