Öskjuhlíð

Öskjuhlíðin er eitt af rótgrónustu svæðum landsins og hefur verið klifrað þar síðan 1978. Í rauninni var þetta fyrsta æfingaraðstaða reykvískra klifrara áður en innanhúss æfingarveggir voru byggðir. Það er aðallega klifrað á fyrstu þremur steinunum á svæðinu en einnig eru leiðir á nokkrum steinum innar í skóginum.

Stríðsminjar í Öskjuhlíðinni eru ýmiskonar byggingar frá seinni heimsstyrjöldinni. Þar má meðal annars finna steypt skotbyrgi, stjórnbyrgi, víggrafir úr torfi og grjóti, loftvarnarbyrgi, neðanjarðarvatnstankar, fjöldi gólfa og grunna undan bröggum og öðrum byggingum. Hluti gistibúða breska flughersins (e. Transit Camp) er enn í Nauthólsvík.

Leiðarvísir

ForsíðaÍ Reykjanes Boulder eru tekin fyrir þrjú klifursvæði á Reykjanesinu og Öskjuhlíðina í Reykjavík.

Sjá meiru um leiðarvísinn.

Directions

Ekið er Flugavallavegin og lagt á bílastæði sem er á móti Loftleiðum. Þaðan er gengið upp stíginn í 3 mín. Þá er beygt til hægri og eftir ca. 50 metra birtast fyrstu klettarnir á vinstri hönd.

Map

Leave a Reply

Skip to toolbar