Leiðin Fagurt er í fjörðum er sjötta leiðin sem var boltuð í klettinn. Í henni eru 7 boltar og akkeri með hring. Lengd um 22 m.
“Létt yfirhangandi kantaklifur upp að tæpi jafnvægiskrúxi sem endar með látum” er það sem Doddi notar til að lýsa leiðinni sinni.
Leiðin er ófarin. Opið prójekt.
Boltun: Þórður Sævarsson, júní 2025.
6 related routes
Leiðin Fagurt er í fjörðum er sjötta leiðin sem var boltuð í klettinn. Í henni eru 7 boltar og akkeri með hring. Lengd um 22 m.
“Létt yfirhangandi kantaklifur upp að tæpi jafnvægiskrúxi sem endar með látum” er það sem Doddi notar til að lýsa leiðinni sinni.
Leiðin er ófarin. Opið prójekt.
Boltun: Þórður Sævarsson, júní 2025.
Leiðin Hrafna-Flóki er fimmta leiðin sem var boltuð í klettinn. Í henni eru 10 boltar, sá neðsti sameiginlegur með leiðinni Núpa-Jón. Akkeri með hring. Lengd um 22 m.
Boltun: Magnús Ken Shimomura-Magnússon, ágúst 2023.
Fyrst farin: Magnús Ken Shimomura-Magnússon, 2024
Leiðin Núpa-Jón er fjórða leiðin sem var boltuð í klettinn. Í henni eru 11 boltar, sá neðsti sameiginlegur með leiðinni Hrafna-Flóki. Akkeri með hring. Lengd um 23 m.
Boltun: Veigar Ölnir Gunnarsson, ágúst 2023.
Fyrst farin: Vikar Hlynur Þórisson, júní 2025.
Leiðin Flóð er þriðja leiðin sem var boltuð í klettinn. Í henni eru 11 boltar og akkeri með hring sem er sameiginlegt með leiðinni Fjara. Lengd um 24 m.
Boltun: Veigar Ölnir Gunnarsson og Hjördís Björnsdóttir, október 2022.
Fyrst farin: Vikar Hlynur Þórisson, 2023.
Leiðin Fjara er önnur leiðin sem var boltuð í klettinn. Í henni eru 12 boltar og akkeri með hring sem er sameiginlegt með leiðinni Flóð. Lengd um 25 m.
Boltun: Hjördís Björnsdóttir og Veigar Ölnir Gunnarsson, október 2022.
Fyrst farin: Vikar Hlynur Þórisson, 2023.
Leiðin er sú fyrsta sem var boltuð í klettinn. Eins og með aðrar leiðir á svæðinu þá er hún með grjótglímulega byrjun. Eftir það er hún jöfn og skemmtileg en endar svo á stífu crúxi í lokin.
Þótt leiðin hafi verið boltuð sumarið 2020 þá var það ekki fyrr en fimm árum síðar að hún var frumfarin af honum Dodda (Þórði Sævarssyni) eftir að ýmsir höfðu reynt sig við hana. Hann hafði þetta um leiðina að segja eftir frumferðina: “Frábærlega jafnt og skemmtilegt klifur upp að stífu krúxi við síðasta bolta.“
9 boltar og akkeri með hring. Lengd um 22 m.
Boltun: Björgvin Hilmarsson, ágúst 2020.
Fyrst farin: Þórður Sævarsson, júní 2025.