2010
Annað klifurmót vetrarins í KH
Skrifað af: jbb Mánudagur, 22. nóvember 2010 09:43
Annað klifurmótið af fjórum var haldið í Klifurhúsinu um helgina. Búið var að hreinsa gripin af öllum veggjum og setja upp nýjar fyrsta flokks leiðir fyrir mótið. Leiðirnar í ár voru skemmtilegar og margar hverjar erfiðar. Leiðasmiðir mótsins voru Eyþór, Kristó og Valdi.
Eins og flestir vita er búið að skipa nýjan rekstrarstjóra fyrir Klifurhúsið og var gaman að sjá nýtt skipulag á geymslum, lager og búri. Einnig er einn veggurinn ný málaður og flottur.
Smella á "nánar" til að sjá úrslit mótsins.
Klifurveggurinn í Patreksfirði
Skrifað af: kþb Mánudagur, 18. október 2010 09:30
Helgina 9. og 10. október fórum við Kristó, Örvar, Jafet og Ásrún til Patreksfjarðar að halda smá klifurnámskeið. Björgunarsveitin Blakkur þar í bæ er búin að byggja mjög fínan klifurvegg, um fimm metra háan. Við byrjuðum á því að skrúfa allar festur sem voru þá á veggnum niður og skrúfa upp um 15 nýjar þrautir og gráða þær alveg eins og í Klifurhúsinu. Svo komu ungmenni úr björgunarsveitunum á Ísafirði og Patreksfirði og reyndu við þrautirnar. Við fórum einnig yfir grunnatriði í línuklifri. Við vorum mjög ánægð með hvernig námskeiðið gekk og mikill áhugi var fyrir þessu öllu saman. Krakkarnir stóðu sig vel þrátt fyrir að þau hafi flest öll þurft að klifra á tánum.
Reykjanes Boulder tilbúinn
Skrifað af: jbb Miðvikudagur, 13. október 2010 19:36
Nýji klifur leiðarvísirinn Reykjanes Boulder er loksins kominn í búðir. Í leiðarvísinum eru tekin fyrir fjögur grjótglímu klifursvæði; Öskjuhlíð, Gálgaklettar, Valbjargargjá og Hörzl við Hauga. Fjöldi leiða á svæðunum er á milli 18-44 og eru þær samtals 108 í bókinni. Ekkert af þessum svæðum hafa áður komið út í leiðarvísi og er þetta góð viðbót við klifurmenninguna á Íslandi.Vísirinn er í sama stíl og Jósepsdalur Boulder sem var gefinn út í fyrra nema bara flottari. Hægt er að nálgast leiðarvísinn í Klifurhúsinu og Fjallakofanum.
Klifur í Háskóla Íslands á Laugarvatni
Skrifað af: þs Mánudagur, 11. október 2010 13:28
Við Háskóla Íslands á Laugarvatni er kenndur klifuráfangi þar sem farið er í helstu grunnatriði klifurs. Í haust hafa nemendur verið duglegir að klifra og heimsótt helstu klifursvæðin á suðvesturhorninu, Valshamar, Stardal og Hvanngjá á Þingvöllum.
Hápunktur áfangans var svo helgarferð á Hnappavelli 17-19. september. Þar var klifrað frá föstudegi fram á nótt til sunnudags. Allir fundu eitthvað við sitt hæfi og klifraðar leiðir voru til dæmis Grámosinn glóir 5.4, Góð byrjun 5.5, Músastiginn 5.6, Páskaliljur 5.7, Þetta eru fífl Guðjón 5.8, Stefnið 5.9 og Can Can 5.10b.
Eitthvað var reynt við grjótglímu en þar sem fæstir höfðu komið á Hnappavelli áður vantaði tilfinnanlega leiðarvísi fyrir grjótglímu á Hnappavöllum. Þó var ein ný "grjótglímuleið" klifruð þess helgi, F-16.
Aðstaðan á Hnappavöllum er til fyrirmyndar og tóftin kom að góðum notum þegar kólna fór á kvöldin. Veðrið þess helgi var líka alveg til fyrirmyndar, logn og glampandi sól.
Eðlustökksmót Klifurhússins
Skrifað af: jbb Fimmtudagur, 23. september 2010 16:07
Dænómót var haldið í gær í Klifurhúsinu. Mótið var með sama sniði og verið hefur undandfarin ár. Keppt var í yngri og svo eldri flokki og stóð keppnin langt fram á kvöld. Andri Már Ómarsson og Elmar Orri Gunnarsson jöfnuðu Íslandsmetið sem Andri setti í fyrra og stukku 240 cm. Katrín Hrund Eyþórsdóttir sigraði í kvennaflokki.Í dænómóti þurfa keppendur að stökkva á nett yfirhangandi vegg upp og til hliðar í 45°. Vegalengdin milli gripanna sem er stokkið úr og það sem er svo gripið í er mæld og stendur Íslandsmetið nú í 240 cm. Vegna lögunar veggsins í Klifurhúsinu þurftu Elmar og Andri að stökkva 247 cm. til að komast áfram en það er tveimur cm. meira en er venjulega bætt við hæðina. Heimsmetið í eðlustökki er 277,5 cm. sem Peter Würth setti árið 2008.
Nokkrar myndir voru teknar í mótinu og er hægt að skoða þær hér.
Nýr klifurveggur í Þórshöfn
Skrifað af: jbb Mánudagur, 20. september 2010 13:40
Nýr klifurveggur hefur verið settur upp í íþróttahúsinu í Þórshöfn. Veggurinn fékk eitt bil í íþróttahúsinu á milli tveggja límtrésbita sem mynda boga þaksins í íþróttahúsinu. Veggurinn er 4,7 metrar á breidd og 8,25 metrar á hæð og er möguleiki á því að lengja hann. Neðst niðri er veggurinn nánast lóðréttur en verður meira yfirhangandi eftir því sem ofar dregur. Ofarlega á veggnum er stór kassi með góðu þaki en þar getur björgunarsveitin æft björgunaraðgerðir eins og sprungubjörgun. Boltar og akkeri eru í veggnum þannig að bæði er hægt að æfa þar ofanvaðs- og sportklifur. 200 klifurgrip voru fengin frá Nicros í Bandaríkjunum til að setja á vegginn.
Friðfinnur Gísli Skúlason kom hugmyndinni af stað og fékk hjálp smiða til að setja vegginn upp en veggurinn var kostaður af Ungmennafélagi Langnesinga, Björgunsveitinni Hafliði og Langanesbyggð.
Nánar um vegginn hér.
Valdi í Köben
Skrifað af: kþb Þriðjudagur, 07. september 2010 11:44
Valdimar Björnsson skellti sér til Köben í þarseinustu viku og tók þátt á dönsku boulder móti, tour de block sem haldið var í Roskilde. Valdi lenti í 3. sæti og fannst mjög gaman.
Myndir frá mótinu má sjá hér.
Hraðaklifurmót á menningarnótt
Skrifað af: has Fimmtudagur, 19. ágúst 2010 22:23
Klifurhúsið stendur fyrir hraðaklifurmóti á Höfðatorgsturninum á menningarnótt milli 14 til 16.
Skráning verður á staðnum og verða keppendur að geta bundið sig sjálfir og leitt, því ólíkt í fyrra verður leiðsluklifur núna en ekki ofanvað.
Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt verða að mæta korter í tvö til að skrá sig.
Ekki þykir ólíklegt að sigurvegarar gangi frá þessu með fulla vasa af gulli auk frægðar og frama, og jafnvel bikar.
Austur-Klofningur
Skrifað af: Doddy Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 20:30
Við fórum tveir félagar frá Laugarvatni að skoða nýtt grjótglímusvæði staðsett á Miðdalsfjalli rétt fyrir ofan Laugarvatn. Leiðin lá upp jeppaslóða við Miðdal og er svæðið um fimm kílómetra frá afleggjaranum. Slóðinn er frekar leiðinlegur en þokkalegur jepplingur ætti að ráða við hann.
Svæðið er klettabelti sem liggur skammt frá Gullkistunni, sem er lítill áberandi hnúkur ofan á Miðdalsfjalli, sem geymir eina boltaða leið, Jómfrúin (5,5). Lendingin undir flestum leiðum er þokkaleg en stundum mikill halli og eitthvað um stóra grjóthnullunga. Grjótið er sumstaðar mjög hvasst, hálfgjört hraun, og lítið viðnám í því.
Við fundum einn stakan stein á svæðinu og glímdum við hann, ásamt því að kíkja á skemmtilegt yfirhang í klettabeltinu. Fjölmargar leiðir litu dagsins ljós og enn fleiri "projekt". Það verður án efa glímt við svæðið aftur á næstunni.
Endalok Strandgötu
Skrifað af: jbb Mánudagur, 09. ágúst 2010 19:32
Klettabeltið við Strandgötu í Hafnarfirði hefur verið rifið niður. Framkvæmdir hófust í dag um hádegi og var þá byrjað að brjóta niður klettana með fleyg á beltisgröfu. Heiðar Þór fór á svæðið í dag og talaði við vinnumenn á svæðinu og sögðu þeir ástæðuna fyrir framkvæmdunum vera slysahætta, að þetta væri allt saman að losna.
Mikil eftirsjá er eftir þessu klifursvæði þó svo það hafi ekki verið stórt. Á svæðinu voru nokkrar góðar klifurleiðir og þar með Reykjavíkurperlan (7a), ein flottasta leið höfuðborgarsvæðisins. Þar að auki var klifursvæðið á góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar.
Reykjavík Boulder leiðarvísirinn sem hefur verið í vinnslu síðan síðasta sumar var væntanlegur í næstu viku en hefur nú verið frestaður þar sem klifursvæðið á Strandgötu var tekið fyrir í honum. Hægt er að ná í Strandgötusíðurnar úr leiðarvísinum hér fyrir neðan.
Grjótglíma í nágrenni Reykjavíkur
Skrifað af: JBB Miðvikudagur, 21. júlí 2010 00:07
Eftir að hafa heyrt orðróm um ágæti námusteinanna í Geldinganesi ákváðu þeir Jónas (Jonni) og Kári að skoða svæðið nánar. Í námunni fundu þeir fjóra ágætis steina og klifruðu á þeim um 15-20 leiðir sem þeir skýrðu og gráðuðu. Leiðirnar eru í léttari kantinum en eflaust er hægt að bæta við nokkrum leiðum. Jonni var ánægður með árangurinn og útilokar ekki að þarna sé hægt að finna fleiri steina. Eftir daginn tóku félagarnir leiðirnar saman og settu í smá leiðarvísi en hann er hægt að sækja hér.
Nokkrar nýjar grjótglímuleiðir hafa einnig verið klifraðar á Háabjalla og hafa leiðirnar verið skráðar inn á Klifur.is.
Hnappavallarmaraþon 2010
Skrifað af: ahs Laugardagur, 03. júlí 2010 17:05
Helgina 9. - 11. júlí verður hnappavallarmaraþonið (Hnappóþon) 2010 haldið. Það er þriðja hnappavallarmaraþonið í röðinni og reynt er að halda í sömu hefðir og hafa myndast síðustu tvö ár.
Keppt verður í tveggja manna liðakeppni eftir sömu stigum og keppt var eftir í fyrra. Einnig er um að ræða "Ghettoblaster" þema og allir sem taka þátt þurfa að taka með sér einhverskonar hljómflutningstæki, ipod hátalara eða annað sem framleiðir tónlist og veitt verða aukaverðlaun fyrir bestu tónlistina.
Rétt er að taka fram að sjálft mótið fer algjörlega fram á laugardeginum, svo allir ættu að geta lagt snemma af stað á sunnudaginn til að horfa á úrslitaleikinn í HM.
Nánari upplýsingar um Hnappóþon 2010 má finna á heimasíðu klifurhússins
Warning: getimagesize() [function.getimagesize]: Unable to access images/stories/valdi.jpg in /home2/klif5243/public_html/klifur.is/plugins/content/smartresizer.php on line 189
Warning: getimagesize(images/stories/valdi.jpg) [function.getimagesize]: failed to open stream: No such file or directory in /home2/klif5243/public_html/klifur.is/plugins/content/smartresizer.php on line 189
Erfiðasti Boulderprobbi á Íslandi klifraður!
Skrifað af: EK Miðvikudagur, 30. júní 2010 21:50
Þann 19. júní gerðust merk tímamót á Hnappavöllum þegar hann Valdimar Björnsson klifraði Kamar probbann 7C+ (8a?) sem er erfiðasta boulderleið á Íslandi. Kamar probbinn er staðsettur fyrir aftan hinn víðfræga kamar á Hnappavöllum. Settur hefur verið upp bolti fyrir ofan leiðina og fór Valdi hana í toprope, hins vegar er beðið eftir hetju sem vill láta ljós sitt skína og high ball-a hana þar sem leiðin er 7m.
Undanfarin ár hefur áhuginn á boulderi farið stig vaxandi. Margir nýjir probbar hafa verið klifraðir og mörg ný boulder klifursvæði uppgötvuð, þar má nefna Vaðalfjöll sem er talið vera eitt besta bouldersvæðið á Íslandi þótt ekki sé langt síðan klifrarar byrjuðu að klifra þar á fullu.
Til hamingju Valdi með þennan merka sigur og við bíðum öll spennt eftir 8a eða 8a+.
Undur og stórvirki á Hnappavöllum
Skrifað af: EOG Þriðjudagur, 15. júní 2010 18:42
Um síðustu helgi heimsótti Kjartan slátrarann enn og aftur - í þetta skipti átti hann betur! Kjartan Björn er þar með sjötti maðurinn sem klifrar Sláturhúsið (8a) á Hnappavöllum. Til hamingju með árangurinn og gangi þér vel í Ópus ;)
Nýjar leiðir á Akrafjalli
Skrifað af: JBB Þriðjudagur, 01. júní 2010 15:15
Klifrað var á grjótglímusvæði við rætur Akrafjalls um helgina. Lítið hefur verið klifrað á svæðinu og voru margar nýjar leiðir klifraðar, þar á meðal Besta leiðin 6c, sem þykir vera mjög skemmtileg. Nýju leiðirnar hafa þegar verið settar inn á Klifur.is.
Nokkuð var um mosa á óklifruðum leiðum og var þess vegna gott að hafa með sér góðan vírbursta til að hreinsa hann í burtu.
Klifursvæðið var auðvelt að finna þar sem það er á fyrstu klettunum sem komið er að þegar ekið er upp að fjallinu. Eftir að hafa klifrað í nokkurn tíma ákvað hópurinn að ganga aðeins um svæðið og athuga hvort meira klifur væri á svæðinu. Þegar horft er yfir svæðið sér maður að þarna er heill hellingur af klettum en þó fannst ekki mikið af klifurleiðum í þessum göngutúr sem var frekar svekkjandi.
Enginn af gestunum höfðu áður klifrað á klifursvæðinu og voru allir ánægðir með daginn og ánægðir með svæðið þó að ekki hafi fundist mikið klifur ofar í brekkunum. Ekki er þó öll von úti því göngutúrinn náði engan veginn að klára allt svæðið og er alveg óhætt að mæla með þessu svæði.
Hægt er að skoða myndir frá ferðinni hér.
Vaðalfjöll flottasta svæðið
Skrifað af: JBB Þriðjudagur, 25. maí 2010 23:22
Mikið var klifrað um helgina í Vaðalfjöllum. Dótaklifur hefur lengi verið stundað á hrauntappanum en nýlega hafa klifrarar farið að stunda þar grjótglímu og hafa nú verið klifraðar þar um 30-40 grjótglímuleiðir. Eru klifrarar almennt sammála um það að Vaðalfjöll sé eitt flottasta grjótglímusvæðið á Íslandi.
Grjótglímusvæðið er við rætur stærsta hrauntappans í rúmlega 400 metra hæð yfir sjávarmáli. Tveir aðrir hrauntappar eru í nágrenninu en þeir eru kallaðir Litla- og Stóra Búrfell en á Stóra-Búrfelli er einnig möguleikar á nokkrum línum. Grjótglímusvæðið er vestan megin á Vaðalfjöllum og skiptist í 6 svæði. Hægt er að stunda þar klifur jafnvel þó að það rigni vegna mikils yfirhangs.
Hægt er að skoða myndir frá helginni og einnig hægt að sækja myndir af klettunum í Steinabankanum.
Ferð til Kanada og Ameríku
Skrifað af: JBB Sunnudagur, 16. maí 2010 19:07
Vinirnir Ásbjörn, Róbert, Daníel, Ingvar og Rannveig komu á dögunum úr hetjuferð sinni til Kanada og Ameríku. Hópurinn sem var styrktur af fyrirtækjum og félögum lagði af stað 4. janúar síðastliðinn og kom heim til Íslands í lok apríl. Ferðin byrjaði í Seattle í Bandaríkjunum. Þar verslaði hópurinn sér bíl sem var svo ekið til Kanada þar sem var skíðað og ísklifrað. Eftir þriggja mánaða veru í Kanada var svo haldið til Ameríku þar sem var meðal annars klifrað í Joshua Tree og Red Rocks.
Áður en lagt var af stað í ferðina kom hópurinn sér upp heimasíðu þar sem er hægt að lesa um ferðina og skoða flott video sem þau settu inn.
Smella hér til að sjá nánar úr ferð.
Úr senunni: Fréttir af Adam Ondra, Dai Koyamada og fleira
Skrifað af: ahs Fimmtudagur, 13. maí 2010 16:21
Hér er samantekt af því sem hefur verið að gerast í klifursenunni undanfarna daga. Dai Koyamada endurtók "The story of 2 worlds", viðtal við Adam Ondra í UKClimbing.com og fleira.
Smelltu á "nánar" til að sjá samantektina.
Nýr og betri Valshamar
Skrifað af: JBB Miðvikudagur, 05. maí 2010 13:53
Nýr leiðarvísir er kominn á netið. Leiðarvísirinn er af Valshamri í Eilífsdal og voru það Sigurður, Skarphéðinn og Björgvin sem áttu þetta framtak. Leiðarvísirinn var gefinn út í fyrra í ársriti Ísalp.
Nokkrar nýjar leiðir hafa bæst við síðustu ár og er nú fjöldi leiða í hamrinum 25 talsins. Flestar leiðirnar eru boltaðar og eru frá 5.4 upp í 5.11+.
Hægt er að sækja leiðarvísinn hér.
Aðalfundur Klifurfélags Reykjavíkur
Skrifað af: EOG Föstudagur, 30. apríl 2010 12:21
Fimmtudaginn 29. apríl var haldinn aðalfundur hjá Klifurfélagi Reykjavíkur. Það kom fram á fundinum að rekstur félagsins hafi gengið vel og að starfið innan félagsins sé einnig í miklum blóma. Á fundinum var Guðlaugur kosinn formaður félagsins. Hrefna og Arnór voru kosin sem meðstjórnendur til næstu tveggja ára. Núverandi stjórn skipa þá Guðlaugur, Stefán, Agnar, Hrefna, Arnór. Hjalti Rafn mun áfram starfa sem rekstrarstjóri. Við viljum nota tækifærið og þakka fráfarandi stjórnarmönnum fyrir frábært starf undanfarin ár.Bræður í Siurana
Skrifað af: KÞB Laugardagur, 17. apríl 2010 00:51
Valdi og Kjartan, Björnssynir héldu til Siurana í rúmlega mánuð og eru nýkomnir heim. Strákarnir klifruðu í Siurana, Margalef, St.Lynia og Terradets. Valdi hélt út til Cataluníu þar sem ein bestu klifursvæði í heiminum er að finna. Þar klifraða hann einn í viku í Siurana, þar sem hann boulderaði (fyrstur Íslendinga?) á sportklifursvæðinu Siurana (hahaha).
Hér má finna boulderklippu frá Siurana.
Kjartan fann svo bróður sinn í Cataluníu og klifruðu þeir saman á ofantöldum klifursvæðum. Þar hittu þeir marga skemmtilega klifrara, þar á meðal Dave Graham, sem þeir lærðu mikið af. Klifurfriction var með besta móti segja þeir, ,,kalt var í veðri allan tímann, það voru bara fjórir dagar sem ég var ekki í ullarnærfötunum", segir Valdi.
Leiðir sem strákarnir klifruðu má finna á www.8a.nu
Svo fer maður í search og leitar af Kjartan og Valdimar.
Töffarar!
Kristján og Stefanía Íslandsmeistarar
Skrifað af: JBB/ÖDR Sunnudagur, 11. apríl 2010 21:07
Það má með sanni segja að Valdi og Hjalti Rafn hafi sett upp frábærar leiðir fyrir fjórða og síðasta klifurmót vetrarins sem var haldið í blíðskapar verði innan veggja Klifurhússins í dag. Þátttakan góð en klifrið betra!
Verðlaun klifurmóta hafa ávallt verið eftirsótt og sigurvegarar þessa móts fengu hina geysimögnuðu klifur regnhlíf því ekki er hægt að klifra ef steinninn er blautur.
Eftir mótið voru stig mótanna fjögurra lögð saman og svo voru þau Kristján Þór Björnsson og Stefanía R. Ragnarsdóttir krýnd Íslandsmeistarar. Í yngri flokki unnu Nils Alexander Novenstein og Ásrún Mjöll Stefánsdóttir.
Klifur.is fyrir alla
Skrifað af: JBB Fimmtudagur, 08. apríl 2010 19:06
Stórum áfanga hefur nú verið náð í þróun Klifur.is sem hefur nú opnað fyrir ensku útgáfuna af síðunni (sjá fána efst). Eins og áður hefur komið fram er markmið Klifur.is að safna saman upplýsingum um klifur á Íslandi og gera þær aðgengilegar fyrir alla. Aldrei fyrr hefur verið jafn auðvelt fyrir erlent áhugafólk um klifur að fá upplýsingar um klifur á Íslandi.
Þó svo að mikil vinna sé að baki er enn nóg eftir að gera. Hugmyndir eru um að setja inn á Klifur.is upplýsingar um góðar klifuræfingar, tegjur, upplýsingar um klifurmeiðsli, grunntækni í klifri og margt fleira.
Ég veit ekki með ykkur en ég er búinn að fara út að klifra, TVISVAR!
Skrifað af: ÖDR. Miðvikudagur, 24. mars 2010 22:11
Heilmiklar leysingar hafa átt sér stað í Jósepsdal að undanförnu og er allur snjór að hörfa þaðan svo hratt að hyldjúpt stöðuvatn hefur myndast. Þetta er ekkert grín og er myndin til að sanna það!
Orsök þessa er sú að sólin er farin að vera til kl 8 á kvöldin og veðrið hefur bara verið hið spakasta! Það lítur allt út fyrir að það verði svona áfram ef eitthvað má marka jákvæðisspá klifur.is. Mælum við með því að fólk fari nú að drattast á hin og þessi klifursvæði og láti til sín taka!
Klifur.is kemur Íslandi á kortið
Skrifað af: JBB Sunnudagur, 21. mars 2010 23:56
Mikil vinna stendur nú yfir í þróun Klifur.is. Starfsmenn Klifur.is hafa tekið sig saman og vinna nú hörðum höndum við að þýða Klifur.is yfir á ensku. En ekki nóg með það heldur er einnig verið að skrifa niður upplýsingar um klifursvæði sem áður hefur vantað upplýsingar um. Einnig er verið verið að þróa kortakerfið á Klifur.is og breyta uppsetningum. Öll þessi vinna er í miðjum klíðum en hægt er að skoða uppkast að breytingum á Jósepsdal síðunni og kort sem er unnið með google map.
Hingað til hafa upplýsingar um klifur á Íslandi fyrir útlendinga verið af skornum skammti en með þessari framkvæmd mun Ísland heldur betur skjóta sér inn á alheims kortið í klifurgeiranum.
Klifur.is á ensku er væntanleg á næstu vikum.
Nýir leiðarvísar
Skrifað af: JBB Föstudagur, 26. febrúar 2010 02:17
Klifursvæðin eru bæði sportklifursvæði.
Einnig er rétt að benda á Leiðir flipann á síðunni. Þar getur þú sett inn klifurleiðir sem þú veist um. Ef klifursvæði vantar inn sendið þá upplýsingar um það á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Íslandsmeistaramót 31. janúar
Skrifað af: EOG Mánudagur, 08. febrúar 2010 12:00
Klifurfélaga Reykjavíkur hélt á dögunum þriðja mótið í Íslandsmeistaramótaröðinni í Grjótglímu. Margir helstu klifrara landsins komu saman í Klifurhúsinu og spreyttu sig á 20 leiðum sem settar voru upp fyrir mótið. Síðasta mótið verður haldið 28. mars og er búist við skemmtilegri og spennandi keppni.
Mótin eru sett þannig upp að keppt er í þremur aldursflokkum og eru fyrir alla sem stunda klifur. Nánar um mótaröðina á heimasíðu Klifurhússins.
Hörzl við Hauga
Skrifað af: JBB Mánudagur, 25. janúar 2010 23:16
Menn hafa verið að velta fyrir sér hvað væri rétta nafnið á klifursvæðinu sem áður var talið að væri í Sýrfellshrauninu. Nokkur nöfn hafa komið til greina en efir að talað var við kunnuga menn kemur í ljós að samkvæmt örnefnalýsingu fyrir Kalmanstjörn er rétt nafn á svæðinu Hörzl. Er þá hægt að skilgreina svæðið Hörzl við Hauga.Valbjargagjá
Skrifað af: JBB Mánudagur, 11. janúar 2010 12:51
Nýtt klifursvæði hefur fundist á Reykjarnesinu. Þetta er grjótglímusvæði sem Stefán Smárason fann og er staðsett í Valbjargagjá. Klifursvæðið er á litlu klettabelti nálægt Reykjarnesvita og eins og margir vita er útsýnið á því svæði ekki á lakari endanum. Klifrið í Valbjargargjá er mjög flott en flestar leiðirnar þar eru í nettu yfirhangi. Bergið er frekar sérstakt með nóg af puttaholum og köntum og lendingin er góð. Ekki er búið að klifra mikið á svæðinu en þar er möguleiki á um 20 klifurleiðum.



