Háibjalli

Klettarnir eru hæðstir um 10 metrar og henta vel fyrir byrjendur og yngri klifrara. Eitthvað hefur verið grjótglímt á hömrunum en þeir eru yfirleitt of háir til að toppa og lendingin er oft leiðinleg í brekku.

Lítið klettabelti er að finna skammt frá Háabjalla. Til að finna það er gengið um 200 metra í suð-austur frá Háabjalla.

Ath. Svæðið er í eigu Skógræktarfélags Voga. Gangið vel um svæðið og takið allt rusl með heim. Það er ruslatunna við bílastæðið en hún er sjaldan tæmd og því er betra að taka allt rusl heim (þetta á sérstaklegs við um hópa). Skógræktin er með vinnukvöld á miðvikudögum og þá er töluverð umgengi á svæðinu.

Directions

Aðkoman að svæðinu er góð. Hægt er að komast að svæðinu á fólksbíl en smá torfærur eru áður en komið er að bílastæðinu.

Beygt út af Reykjanesbraut við Grindavíkurafleggjarann. Keyrið í 2-3 mín og beygið til vinstri á malarveg (vegurinn er á móts við Seltjörn). Keyrið þann veg í ca. 5 mín. Þið ættuð að sjá skóg og grænan kofa fljótlega. Þið leggið við bílastæðið hjá skógræktinni og labbið aðeins lengra en kofinn. Gangið í 2 mín meðfram skóginum. Þar eru hamrarnir á hægri hönd.

Map

Leave a Reply

Skip to toolbar