Þrengsli

Árið 2019 voru Valdimar Björnsson og Kristján Þór Björnsson að malbika Þrengslaveginn.
Dagurinn langur og nægur tími gafst til að líta í kringum sig. Steinarnir í hlíð Stakahnúks leyna
á sér og malarhrúgan blekkir augað. Þetta endaði með því að þeir urðu að ganga upp og skoða
hvort að þarna væri eitthvað sem vert væri að klifra. Sem það vissulega var, steinarnir virka
miklu minni en þeir eru í raun þegar að þeim er komið. Á svæðinu eru steinar af sömu stærð og
gerð eins og má finna á grjótglímusvæðinu í Jósepsdal. Afar fastir í sér, flottir og henta vel til
klifurs. Brekkan er betri en sú sem má finna í Jósepsdal, styttri aðkoma og ekki alveg eins brött.
Á steinunum má finna leiðir frá V1 og upp í V9. Þetta svæði er með eitthvað fyrir alla.

Directions

Til að komast á svæðið frá höfuðborgarsvæðinu er keyrt eftir þjóðveg 1 í átt að Hellisheiðarvirkjun.
Beygt er inn á Þrengslaveg 39 eins og verið sé að keyra til Þorlákshafnar.
Fljótlega má
sjá Lambafellsnámur
á hægri hönd. Malarnámurnar eru tvær. Við afleggjarann hjá seinni
námunni er beygt af Þrengslaveg, til vinstri. Athugið að malbiksbrúnin
er frekar há þar sem
beygt er út af. Eftir það er keyrt eftir malarvegi um 100 metra þar sem er hægt að leggja bílnum.

Map

Leave a Reply

Skip to toolbar