Hólmsberg
Nokkur flott grjót þarna og dótaklifurleiðum við sjóinn.
~ 4 km af klettur sem er hægt að klifra. Sé leiðarvísir frá Robert Askew: https://docs.google.com/document/d/14rr_ji2MKqMi_pnCKykuMw33V5iKyV_YlocjqhIcoNg/edit?usp=sharing
UKClimbing leiðarvísir: https://www.ukclimbing.com/logbook/crags/holmsberg-31343/
Mælt er með að hafa sér siglínu og línuvarnir – bergið er gróft.
Stórglæsilegt berg, mögulega eitt það besta á suðvesturhorninu, sem staðsett er í um það bil 5 mínútna fjarlægt frá Keflavík. Einnig er þar að finna stórglæsilegt útsýni yfir Faxaflóa, Reykjavík og Snæfellsnes. Hins vegar er sýnin ekki jafn fögur inn í landið. Klettabeltið er samtals um 4 kílómetra langt svo búast má við að leiðum fjölgi á komandi árum, þar á meðal á svæðum sunnan Helgavíkur og inn í Keflavík.
Það mætti nánast kalla það furðulegt að ekki hafi verið klifrað hér fyrr en árið 2023. Á fyrsta árinu voru klifraði um 20 nýjar leiðir, allt á náttúrulegum tryggingum. Flestar þessara leiða eru á Ægissektornum sem má finna u.þ.b. 100 metra suður af vitanum þar sem klettarnir eru hvað hæstir. Bergið er basalt sem, þökk sé sjónum, er gróft og fast. Þar sem það er ljósgrátt er það oft ávalt (slopey) og stundum með smá sandi, en dekkra bergið býður bæði upp á gott viðnáms- og juggaraklifur.
Mælt er sérstaklega með leiðinni Fedallah sem fyrstu leið. Höfundar telja hana vera eina bestu auðveldu dótaleið landsins.
Reglur og siðir
Eins og er við útgáfu þessa leiðavísis þá eru allar leiðirnar klifrað í dóti. Settir hafa verið inn nokkrir boltar til að auðvelda sig og akkerissmíði, en ákveðið hefur verið að bíða með boltun leiða þangað til að frekari viðræður hafa farið fram, þar á meðal við sveitarfélagið. Þeir boltar sem settir hafa verið (2024) eru allir úr 316 stáli (ekki marine-grade) og ættu að vera fínir í bili en verða síðan skipt út fyrir meira viðeigandi efni seinna Update 2025: Nýjar titaníum boltar frá Syllan til Grótsvík – nokkir stál boltar eru ennþá í staðnum en alltaf skoða þennan boltar. Vel tryggðar línur á Ægissektornum munu ekki vera boltaðar.
Við deilum þessum klettum með fjölmörgum sjófuglum og vatninu með selum, hvölum og öðru sjávarlífi. Klifrarar skulu ekki trufla fugla í varpi og helst ekki enga fugla ef mögulegt er. Sumir klettarnir munu eflaust aldrei verður klifraði vegna bleytu og fuglaskíts, en það er í góðu því nóg af klettum er að finna.
Klifrarar skulu ganga vel um og taka allt rusl með sér.
Þó að bergið sé almennt mjög gott þá er samt sem áður æskilegt að vera með hjálm þar sem berg getur reynst breytilegt milli ára. Einnig skal fara varlega upp á klettunum þar sem hrunið getur undan fótunum og sumstaðar má finna sleipann mosa.



Directions
Það tekur 3 mínútur að keyra í Selvík frá Keflavík, það er nálægt bílastæði við Hólmbergsvita, gengið noður brekkuna þar í fjöruna og Loðnusteinn mjög augljós þar.
Holmsberg lighthouse
https://maps.app.goo.gl/62V47yzDRYuX3vXF6?g_st=ic