Valþjófsdalur
Veggurinn er í Valþjófsdal í Önundarfirði, á Vestfjörðum og er um 35 m hár frístandandi basalt berggangur. Klettaveggurinn stendur stakur en grjótskriður ganga niður með honum sitt hvoru megin. Sú hlið sem klifurleiðirnar eru á er vel varin fyrir grjóthruni. Þar sem svæðið fyrir framan klettinn er í bratta og klettar þar fyrir neðan er mælt með að forklippa í fyrsta bolta í öllum tilfellum. Leiðirnar eru á bilinu 20 – 25 m að lengd og því mælt með 60 m línu.
Björgvin Hilmarsson uppgötvaði og opnaði svæðið sumarið 2020. Boltaði þá fyrstu leiðina sem kallast Valþjófur var hér. Veggurinn er á einkalandi. Sama gildir hér sem annars staðar, alger og ófrávíkjanleg regla er að umgengni sé góð og virðing fyrir náttúrunni höfð í öndvegi, hvort heldur sem er við bæinn eða á klifursvæðinu. Í ársriti ÍSALP 2024 má finna grein um svæðið með frekari upplýsingum. Hægt er að hafa samband við Klifurfélag Vestfjarða (info [at] klifra.is) eða Björgvin sjálfan til að fá frekari upplýsingar. Boltun er óheimil nema að höfðu samráði við Klifurfélag Vestfjarða sem fer með umsjón svæðisins.
—
The wall is in Valþjófsdalur in Önundarfjörður in the Westfjords of Iceland, and it´s about 35 m tall free standing basalt dyke. The side of the wall where the routes are located is well protected from rock fall. As the immediate area in front of the wall is steep, it´s recommended to pre-clip the first bolt in all routes. The routes are around 20 – 25 m so 60 m rope is recommended.
The crag was opened up in the summer of 2020 by Björgvin Hilmarsson who bolted the first route called Valþjófur var hér. The wall is on a private land and it´s absolutely necessary that climbers show utmost respect for the land, the farmer (at Tunga farm) and the area´s nature in general. For additional information contact The Westfjords Climbing Club (info [at] klifra.is). The crag is overseen by the club. No bolting is allowed without getting permission from the club and the land owner.

Directions
Svæðið er í um fimm og hálfs tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík og það tekur um hálftíma að komast þangað frá Ísafirði. Hægt er að leggja við bæinn Tungu (https://www.map.is/base/@293288,620313,z15,0). Ræðið við bóndann, sem heitir Sigmundur Bjarþór Þorkelsson, þegar þið mætið á svæðið. Ef hann er ekki þar, verið þá viss um að leggja ekki fyrir neinar dyr eða staði þar sem augljóslega gæti þurft að fara um. Sigmundur selur frábæran harðfisk og ekki úr vegi að kippa pakka með sér enda hið besta klifurnesti. Frá Tungu er um 30-40 mínútna rölt upp að klettinum (1,5 km og um 240 m hækkun). Aðkoman er brött undir það síðasta og betra að fara frekar fyrr en seinna upp brekkuna undir klettabeltinu og ganga svo með lægri klettunum að þeim stóra. Óhætt að segja að aðkoman og svæðið við klettinn sé ekki barnvænt.
---
The area is about five and a half hours drive from Reykjavík, about half an hour from Ísafjörður. It´s possible to park by the farm Tunga (https://www.map.is/base/@293288,620313,z15,0). Talk to the farmer, named Sigmundur Bjarþór Þorkelsson, when you arrive. If he´s not there, be sure not to block any doors or driveways. By the way, the farmer sells the best dried fish and it´s a really good idea to buy a package to bring along for a day of climbing. From the farm there is about a 30-40 minutes walk up to the wall (1.5 km and about 240 m up). The access hike is steep and not suitable for children.