Skinnhúfuklettar
Vegna breyttra aðstæðna er klifur í Skinnhúfuklettum ekki heimilað. Klifrarar eru vinsamlegast beðnir um klifra ekki í klettunum og heldur ekki að ganga upp að þeim vegna viðkvæmrar skógræktar sem er hafin milli vegar og kletta.
Aðgengi að klettunum til klifurs mun vonandi verða opnað á ný og upplýsingar um stöðuna verða birtar hér þegar þar að kemur.
—
Circumstances have changed regarding access and climbing in Skinnhúfuklettar. Climbing is prohibited for the time being, and climbers are kindly asked to respect this. Due to sensitive new planting between the road and the cliffs, climbers are also asked not to walk up to the cliffs for the time being. Access will hopefully open again, and information about this will be published here.
Klifrað hefur verið á Skinnhúfuklettum í Vatnsdal síðan 1989. Klifrarar fóru þangað fyrst til að klifra í stórum stuðlabergshamar sem sést vel frá veginum en kom þá í ljós að hamarinn var laus í sér og óhæfur til klifurs. Klifrað var á Skinnhúfuklettum í staðin og fengu klettarnir þá nafnið Sárabótin.
Bergið í Skinnhúfuklettum getur verið svolítið hvasst og hrjúft. Klifrið er oft svolítið sértakt, oft mikið jafnvægis og fingraklifur. Ekki mjög byrjendavænt klifur.
Í dalnum hafa fundist margar fornleifar og núna í sumar komu hauskúpur rúllandi á móti bónda sem var að grafa í landinu sínu. Voru það fornleifar frá því um 100 árum eftir að fólk settist að hér á Íslandi.
Directions
Frá þjóðvegi 1 er beygt inn í Vatnsdalinn, austan megin við Vatnsdalsá. Keyrt er um 11 km. inn í dalinn, fram hjá Hvammi og þá blasa klettarnir við á vinstri hönd. 4-5 mínútna ganga er síðan upp að klettunum.