28 related routes

Útúrdúr 5c 5.7

Gul punktalína á mynd

Dótaklifurafbryggði af Eilífur er ekki hér.

Í Ísalp leiðarvísi frá 1994 byrja fjórar leiðir á sömu hreifingunum en greinast síðan í sundur þegar ofar dregur.

Útúrdúr og Eilífur er ekki hér fylgja sprungunni áfram upp og fara ekki á stóra steininn sem er áberandi á veggnum á meðan Supermax og Hrúðurkarlar fara út á steininn og greinast þaðan í tvennt.

Sprungan sem Útúrdúr og Eilífur er ekki hér byrja í sveigir til vinstri miðja leið upp vegginn. Í sveiglunni heldur Eilífur er ekki hér áfram beint upp en Útúrdúr fylgir sprungunni áfram og sameinast svo Eilífur er ekki hér aftur efst.

Undanfarin ár hefur Eilífur er ekki hér yfirleitt verið klifraður með viðkomu á stóra steininum, enda liggur boltalínan nú þannig. Þetta gerir Útúrdúr að enn sjálfstæðari leið en hún var fyrst um sinn

Skuggi 6a+ 5.9

Hvít lína vinstra megin við #6

15m

FF: Freyr Ingi Björnsson og Sveinn Eydal, 2012

Krús 5b 5.6

Rauð lína hægra megin við #5

8m

FF: Freyr Ingi Björnsson og Sveinn Eydal, 2012

Rennilás 5.7

Leið 25
8m
Akkerislaus dótaleið.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Skóreimar 6a+ 5.9

Leið 24 🙂
8m
Leiðin byrjar á stalli og verður strax brött og tæknileg (ek). Hliðrar lítið eitt til vinstri í akkerið undir lokin. Tæknilegar krúxhreyfingar gera þessa að klassískri leið.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Skóreimar, afbrigði 6b+ 5.10b

Leið 23
10m
Leiðin hefst á jafnvægishreyfingum á sléttum vegg við fyrsta bolta (ek). Þaðan er komið á litla syllu og er leiðin tæp eftir hana og alveg upp í topp (ek). Þetta afbrigði liggur vinstra megin við boltalínuna í efri partinum.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Skoran 5a 5.5

Leið 22 🙂 🙂
11m
Þægileg leið á stórum gripum upp áberandi skoru í klettinum

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Hrúðurkarlar 6b+ 5.10c

Leið 20
13m
Fylgir “Eilífi” fyrri helming leiðarinnar en í stað þess að hliðra til vintsri af stóru flögunni fer leiðin til hægri upp brattasta vegginn á litlum tökum og tæknilegum jafnvægishreyfingum (ek).

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Hælkrókur 5.9

Leið 21
13m
Byrjar á sprungu hægra megin við Eilíf en liggur samsíða Hrúðurkörlum í efri helmingnum. Óboltuð.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Supermax 6c+ 5.11a

Leið 19
13m
Tæpt viðnámsklifur upp sléttan vegg hægra megin við Eilíf.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Eilífur er ekki hér 6a 5.8

Leið 18 🙂 🙂 🙂
13m
Leiðin hefst á gleiðri kverk en hliðrar fljótlega út á stóra flögu. Þaðan hliðar leiðin aftur til vinstri og upp fyrir brattasta hluta leiðarinnar (ek). Fylgir svo vinstri kantinum upp í akkerið. Frábær leið, fjölbreytt klifur með skemmtilegum karakter. Klassísk Valshamars leið.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Glóinn 6a 5.8

Leið 17
10m
Fingrasprungu er fylgt upp fyrstu metrana (ek). Um miðbik leiðarinnar gefur sprungan eftir og við taka stór grip og þægilegt klifur

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Stallarnir 5a 5.5

Leið 16 🙂
10m
Leiðin byrjar á auðveldu klifri upp á syllu. Af syllunni er tæp hliðrun beint til hægri (ek) og síðan upp í akkeri á góðum tökum

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Blómálfar 5c 5.7

Leið 15
10m
Leiðin byrjar á auðveldu klifri upp á syllu. Af syllunni er klifrað ská til hægri yfir tæpt fés (ek) og síðan upp í akkeri á góðum tökum. Að mestu sama og leið 16)

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Sumardraumur 6b+ 5.10c

Leið 13 🙂 🙂 🙂
11m
Leiðin hefst framan á stuðlinum en hliðrar svo út á slabbið til vinstri við annan bolta. Brúninni er fylgt upp á litlum köntum en hliðrað út fyrir hana aftur í lokin (ek). Klassísk leið

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Gollum 6c+ 5.11a

Leið 14 🙂 🙂
11m
Þessi fyrrum erfiðasta leið landsins er enn í dag talsverð manndómsraun. Hefst á ágætum gripum sem hverfa fljótlega og við taka fá og smá grip og tæpir fætur. Tæknilega snúin alla leið upp en þó afar gefandi leið. Endar í sama akkeri og Sumardraumur.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Vaknað upp við vondan draum 6c 5.10d

Leið 12
11m
Leiðin liggur á sama vegg og Sumardraumur en þræðir upp miðjuna á tæpa fésinu í stað þess að fara út á hornið eins og Sumardraumur gerir.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Vetrardraumur 6a+ 5.9

Leið 11 🙂
11m
Kverkinni fylgt upp á viðnámshreyfingum. Hliðrað til vinstri undir þakinu, síðan upp og yfir þakið (ek). Fjölbreytt leið sem hýsir nokkrar af örfáum þakhreyfingum í Valshamri

Í Íslap leiðarvísi frá 1994 er þessi lína kölluð Kverkin 5.7, en hún fór ekki jafn langt upp of Vetrardraumur gerir nú.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Haustkul 6c+ 5.11a

Leið 10
8m
Leiðin liggur upp stuðulinn sjálfan og má hvorki nota sprunguna vinstra né hægra megin. Varúð – langt á milli bolta…

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Slabbið 6a+ 5.9

Leið 9 🙂 🙂
12m
Algengast er að hefja leiðina vinsta megin á stuðlinum en hliðra strax yfir til hægri. Þaðan er hægri kantinum fylgt á litlum tökum og tæpum smurningum upp í miðja leið (ek), án þess þó að stíga á slabbið til hægri. Endar á smá krúxi undir akkerinu (ek). Hér verður að treysta viðnáminu..

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Náttgagnið 5b 5.6

Leið 7 🙂
11m
Leiðin liggur upp augljósa sprungu yfir tvö lítil þök. Eftir fyrra þakið hliðrar hún lítið eitt til vinstri og fer þaðan yfir seinna þakið (ek)

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Augnablik 7a+ 5.11d

Leið 8
11m
Beint upp miðjuna á fésinu hjá Slabbinu.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Ein síðbúin 6a+ 5.9

Leið 6
11m
Leiðin liggur upp fésið vinstra megin við áberandi sprungu (leið 7) á litlum tökum og jafnvægishreyfingum. Hliðrar eilítið til hægri yfir tæpt fés (ek) eftir að komið er yfir áberandi þversprungu, sameinast leið 7 fyrir ofan þakið

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Grettistak 5c 5.7

Leið 5 🙂
9m
Leiðin liggur á köntum og brúnum hægra megin á stuðlinum. Endar í sama akkari og Tjakkurinn

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Tjakkurinn 5b 5.6

Leið 4
9m
Leiðin fylgir vinstra horninu á stuðlinum. Erfiðust í byrjun en léttist þegar ofar dregur

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Strobe light 4c 5.4

Leið 3 🙂
7m
Stutt og þægileg leið upp víða sprungu sem geymir gnægð góðra taka

Gengur einnig undir nafninu Stóplægt, sem má rekja til misskilnings við smíð leiðarvísisins.

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

17. júní 5c 5.7

Leið 2
7m
Lítið annað en ein hreyfing í byrjun sem er einna helst leyst með hnefalás. Þægileg eftir það

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Kristján X 4c 5.4

Leið 1 🙂
7m
Þægileg byrjendaleið, stutt á góðum tökum. Þétt boltuð sem hæfir vel sem fyrsta leiðsla

Upplýsingar úr Valshamar leiðarvísi.

Leave a Reply

Skip to toolbar