Veðrið fór varla fram hjá neinum í gærkvöldi. Stóru gluggarnir bakvið veggina í Klifurhúsinu þoldu augljóslega ekki þetta veður og fóru að mígleka með kvöldinu. Sem betur fer voru menn á staðnum sem tókst að redda málunum á frumlegan hátt.
Það lekur ekki bara með gluggunum.
Fötur í brunastiganum sem grípa vatnið
Snilldarlausn
Vatnið leitt ofan í föturnar
Jonni kallar ekki allt ömmu sína
Sag notað til að stöðva vatnsflæðið
Myndir frá Andra Már og Eyþór.
Með því að setja upp stórann plastdúk fyrir aftan vegginn tókst að leiða vatnstrauminn (sem var skuggalega mikill) í átt að brunastiganum þar sem komið var fyrir stórum fötum til að grípa vatnið.
Þessu hefur verið bjargað í bili og Klifurhúsið er í fínu lagi eftir nóttina. Það er þó augljóst að gera þarf við gluggana í húsinu og eflaust þakið líka.
Í dag tókum við Jafet, Eyþór og Jonni gott session og settum inn allar klifurleiðir sem skráðar eru í Hnappavalla Klifurhandbókinni eftir Jón Viðar og Stefán Steinar. Allar klifurleiðir úr leiðarvísunum hans Sigga Tomma (Gerðuberg, Munkaþverá, Stardalur og Valshamar) hafa einnig verið skráðar.
Þegar klifursvæðin eru borin saman sést að Hnappavellir er lang stærsta klifursvæðið okkar þar sem eru núna skráðar 298 klifurleiðir. Það næst stærsta er Stardalur með 87 klifurleiðir og svo Jósepsdalur með 76 leiðir. Það á hins vegar eftir að skrá leiðir úr Vestrahorni þar sem eru um 200 klifurleiðir. Samtals eru núna 812 klifurleiðir skráðar á Klifur.is.
Með því að hafa allar klifurleiðirnar skráðar í tölvutæku formi getum við loks auðveldlega talið leiðirnar á Hnappavöllum en leiðirnar 298 skiptast svona:
Grjótglíma: 139
Sportklifur: 138
Dótaklifur: 21
Þetta er held ég stórt skref fyrir litla klifursamfélagið okkar á Íslandi. Þessar upplýsingar sem við höfum safnað saman í gegnum árin eru það sem gerir klifrið á Íslandi eins skemmtilegt og það er og nú hefur aðgengið að þessum upplýsingum aldrei verið betra. Með allar þessar klifurleiðir skráðar á sama stað er auðvelt að uppfæra stóru klifursvæðin og klifrarar geta farið og upplifað ný klifursvæði án þess að það þurfi að vera til prentaður leiðarvísir. Nú er bara að byrja að skipuleggja næsta sumar. Er ekki eitthvað klifursvæði sem þú átt eftir að skoða?
Ég get ekki sett inn þessa grein fyrr en ég hef þakkað leiðarvísasmiðunum fyrir að vera súper nettir á að leyfa okkur að nota allar upplýsingarnar sem þeir hafa sett svo mikla vinnu í að safna saman. Takk kærlega!
Leiðin er uppi í hlíð á leiðinni út á Salthöfðanef, eftir að maður gengur fram hjá Gimluklett. Leiðin er með áberandi sléttum vegg ofarlega með stórum juggara um það bil á miðjum veggnum.
Hæsta leiðin á Hnappavöllum. Fjórtán boltar. Verkefni sem Kristín Martha byrjaði á að skoða og gaf Jonna svo leyfi til að klára. Langt og þétt krúx, talsvert í fangið eftir að Kúreki norðursins greinist frá Karlinum í tunglinu.