Icelandic Czech English Finnish French German
Borði

2011

Meira um mótið

Skrifað af: eog Fimmtudagur, 01. desember 2011 18:21

Um næstkomandi helgi verður haldið Norðurlandamót ungmenna í grjótglímu. Mótið fer fram í höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, og munu átta íslenskir klifrara taka þátt í að þessu sinni. Klifrararnir eru þau: Ásrún, Andri, Kjarri, Hilmar, Bryndís, Guðmundur, Ríkey og Helena. Öll hafa þau æft af kappi hjá Klifurhúsinu og Björkinni undanfarin ár.

Á sunnudaginn verða úrslitin í beinni útsendingu á heimasíðu sænska klifursambandsins. Við hvetjum alla til þess að fylgjast með okkar þátttakendum.

Við óskum þeim öllum góðs gengis.

 

Meira um mótið

Skrifað af: eog Fimmtudagur, 01. desember 2011 18:21

Um næstkomandi helgi verður haldið Norðurlandamót ungmenna í grjótglímu. Mótið fer fram í höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, og munu átta íslenskir klifrara taka þátt í að þessu sinni. Klifrararnir eru þau: Ásrún, Andri, Kjarri, Hilmar, Bryndís, Guðmundur, Ríkey og Helena. Öll hafa þau æft af kappi hjá Klifurhúsinu og Björkinni undanfarin ár.

Á sunnudaginn verða úrslitin í beinni útsendingu á heimasíðu sænska klifursambandsins. Við hvetjum alla til þess að fylgjast með okkar þátttakendum.

Við óskum þeim öllum góðs gengis.

 

Norðurlandamót í Stokkhólmi

Skrifað af: jbb Þriðjudagur, 29. nóvember 2011 22:40

Andri og Ásrún á Hnappavöllum Um helgina fara þau Ásrún Mjöll og Andri Már til Stokkhólms til að keppa í Norðurlandamóti sem verður haldið þar. Viðtal var tekið við meistarana í Ísland í dag (sjá link).

www.visir.is

Góða ferð og gangi ykkur vel!

 

Valdimar klifrar 8b+ !

Skrifað af: Andri Már Fimmtudagur, 03. nóvember 2011 11:08

Valdimar Björnsson hefur náð þeim stórglæsilega árangri að vera fyrsti Íslendingurinn til að klifra leið af gráðunni 8b+ eða 5.14a.

 

Leiðin ber nafnið Darwin Dixit og er í Laboratory sectornum í Margalef á Spáni. Það tók Valda aðeins 8 daga í heildina að klára leiðina.

 

Til hamingju með þennan frábæra árangur Valdi og gangi þér vel í næstu projectum !

 

 

Sasha DiGiulian

Skrifað af: Andri Már Sunnudagur, 16. október 2011 00:14

Ef þið hafið ekki heyrt á þetta nafn minnst, ættuð þið að leggjast í smá rannsóknarvinnu.

 

Þessi 18 ára stelpa frá Bandaríkjunum hefur nú klifrað sína fyrstu 9a (5.14d) leið. Það gerði hún í Red River Gorge í Bandaríkjunum nú fyrir örfáum klukkutímum. Það tók hana ekki meira en 3 daga og 6 tilraunir svo það má búast við enn stærri afrekum frá þessari stelpu í náinni framtíð. Sasha er þar með þriðja konan til þess að klifra leið af þessu erfiðleikastigi en áður hafa Josune Bereciartu og Charlotte Durif náð þessum frábæra árangri. 

 

Áfram konur/stelpur !!!!!!

 

Uppfærsla á Hnappavallaleiðarvísi

Skrifað af: Andri Már Laugardagur, 15. október 2011 17:35

Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum hefur heldur betur bæst við fjölda klifurleiða úti í Hádegishamri á Hnappavöllum. Af þessu tilefni setti Jón Viðar smá viðbót við leiðarvísinn á netið

HádegishamarEins og áður hefur komið fram hér á vefnum hefur heldur betur bæst við fjölda klifurleiða úti í Hádegishamri á Hnappavöllum. Af þessu tilefni setti Jón Viðar smá viðbót við leiðarvísinn á netið. Þess má geta að allar leiðirnar er að finna hægra megin við þær leiðir sem fyrir voru í klettabeltinu.

 

Einnig var boltuð ný leið í Salthöfða, hún fékk nafn og gráðu Strumpaland 5.3


Þakkir til Jóns fyrir þetta framtak.

 

Þrjú frá Þýskalandi

Skrifað af: Valdimar Björnsson Miðvikudagur, 12. október 2011 10:59



Smellið á 'Nánar...' til að sjá 2 í viðbót.
 

Grjótglíma í Þýskalandi

Skrifað af: Valdimar Björnsson Miðvikudagur, 12. október 2011 10:55

 

Hugmyndir frá Selfossi

Skrifað af: jbb Mánudagur, 10. október 2011 00:18

Í sumar voru klifuráhugamenn frá Selfossi að skoða stóra steinhnullunga sem voru í námu þar skammt frá. Sú hugmynd kom upp að flytja steinana frá námunni í Selfoss og koma þeim þannig fyrir að gott væri að stunda grjótglímu í þeim. Nokkur alvara var fyrir að framkvæma þessa hugmynd og væri gaman að fá að heyra hvernig þetta fór.

Á Geldinganesinu, rétt hjá Grafarvoginum, er steinanáma sem hefur ekki verið unnið í í þó nokkurn tíma. Í henni eru steinar sem eitthvað hefur verið klifrað í en aðgengi, umhverfi og klifur er ekki upp á marga fiska og það hefur ekki verið mikið sótt. Spurningin er hvort sá möguleiki sé raunhæfur að flytja steinana í bæinn. Þá væri aðgengið að steinunum betra og einnig væri hægt að stjórna því að einhverju leiti hvernig steinarnir snúa þannig að þeir væru sem hentugastir fyrir klifur. Spurningin er bara hvort steinarnir séu hentugir, hvort það sé hentugur staður fyrir þá og hvort hægt sé að fá einhverja styrki hugsanlega frá Reykjavíkurborg til að framkvæma þetta.

Þetta er verðugt verkefni til að skoða og hvet ég ykkur klifuráhugamenn á Íslandi til að athuga þetta. Ekki veitir af meira klifri í bæinn.

Hægt er að skoða steinana í leiðarvísi sem Kári og Jonni settu saman.
Hér er einnig gömul frétt um svæðið.
 

Hvítar strendur, brim og sjávarklettar

Skrifað af: eog Miðvikudagur, 28. september 2011 11:11

Andri klifrar í miklu yfirhangi

Fyrir skömmu koma vaskur hópur klifrara heim frá Mallorca þar sem hópurinn mátaði sig í nokkrar deep water solo klifurleiðir. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur hópur fer í klifurferð sem þessa en deep water solo merkir það að klifurleiðirnar eru í sjávarhömrum og þegar klifrararnir detta falla þeir niður í hyldýpið fyrir neðan sig.

 

Til þess að svala forvitni þeirra sem vilja vita hvaða leiðir hópurinn klifraði þá ber okkur að nefna nokkrar þeirra á nafn. Andri Már klifraði Afroman (7b) sem er 18 metra leið í miklu yfirhangi. Leiðin sem Klem Loskot sést klifra í einni Dosage myndanna og hann nefndi In the Night, Every Cat is Black (8a) var klifurð af Kjartani Birni. Ein stelpnanna í hópnum, Ásrún Mjöll, klifraði Hercules (6c) sem er í hellinum Snatch Area á Cala Barques. Hópurinn klifraði á ýmsum svæðum og þar má nefna Cala Barques, Cova de Diablo, Porto Cristo- Tower of Falcons, Es Pontas og Porto Colom.

 

Föruneytið hélt prýðis myndasýningu eftir mótið á sem haldið var á síðastliðinn sunnudag og viljum við þakka fyrir skemmtilegt myndefni.

 

Tvær frá Jósepsdal

Skrifað af: vb Miðvikudagur, 14. september 2011 15:27

Tvær frá Jósepsdal from Valdimar björnsson on Vimeo.

 

Föðurlandið sigrað

Skrifað af: eog Föstudagur, 26. ágúst 2011 13:58

Valdi massiValdimar Björnsson klifraði leiðina Föðurlandið núna fyrr í mánuðnum. Leiðin var boltuð af Jósef og Kristjáni fyrir tveimur árum en hefur verið opið verkefni síðan. Margir af bestu klifrurum landsins spreytt sig á því en engum tekist ætlunarverkið. Leiðin er í Hádegishamri sem er nyrsta klettabeltið á Hnappavöllum. Segja má að leiðin einkennist af nokkrum afar erfiðum hreyfingum og minnir frekar á erfiða grjótglímuþraut - leiðin telur ekki nema 12 metra. Valdimar hyggur að leiðin sé líklega 5.13c eða 5.13d.

Annað sem helst er í fréttum frá Hnappavöllum er að í Hádegishamri eru núna komnar 7 nýjar leiðir. Ekki er vitað um nákvæmar gráður og nöfn á leiðunum en þær eru á bilinu 5.4-5.10c. Kjörið að ná einni góðri ferð austur áður en veturinn gengur í garð og máta sig í þessar.
 

Klifurnámskeið á Hnappavöllum

Skrifað af: jgs Miðvikudagur, 24. ágúst 2011 23:05

Evrópa unga fólksinsÞann 12. til 17. ágúst var haldið klifur og útivistarnámskeið á Hnappavöllum, styrkt af Evrópu unga fólksins. Til að byrja með voru sjö klifrarar skráðir en á öðrum degi slóst sá áttundi í hópinn. Veðrið lék við hópinn allan tímann og allir völdu sér leið til að vinna í yfir námskeiðið. Öllum krökkunum gekk vel klifrið og þurftu flestir að velja sér oftar en einu sinni nýtt verkefni þar sem það fyrra var klárað með stæl. Það ber að nefna tvö afrek sem voru unnin á námskeiðinu; Guðmundur fór Miklagljúfur 5.11a og Bryndís klifraði Janus 5.10a. Allir á námskeiðinu lærðu grunnatriðin í línuklifri eins og að tryggja, þó svo að margir hafi kunnað það fyrir, ásamt því að þræða akkeri.

 

Ævintýraleg ferð var farin í sund á Höfn og einnig út í skipsflak sem niðri við sjóinn sunnan af Hnappavöllum. Mikill áhugi var fyrir grjótglímu í hópnum og bjuggu klifrararnir til nokkrar nýjar þrautir. Allir skemmtu sér konunglega og vildu flestir koma aftur að ári ef það væri í boði.

 

Hnappavallaleiðarvísi frestað

Skrifað af: jbb Mánudagur, 22. ágúst 2011 14:00

Útgáfu á væntanlegum grjótglímu leiðarvísi fyrir Hnappavelli hefur verið frestað til næsta sumars. Í staðinn verður hægt að gera betri leiðarvísi næsta sumar og með fleiri leiðum. Margar leiðir sem hafa verið klifraðar átti eftir að fara yfir, merkja gráður og upplýsingar um leiðirnar. Einnig er mikil vinna eftir í kortagerð fyrir svæði.

 

Stefnt verðu á að gefa út tvo leiðarvísa næsta sumar. Það verður þá Hnappavallaleiðarvísirinn og svo líklega grjótglímu leiðarvísir fyrir Vaðalfjöll eða klifurleiðarvísir fyrir Vestfyrði.

 

Klifurveggur á Egilsstöðum tekinn niður

Skrifað af: jbb Miðvikudagur, 10. ágúst 2011 12:37

Klifurveggurinn í Íþróttamiðstöð Egilsstaða hefur verið tekinn niður. Veggurinn var staðsettur í einu horni í stórum íþróttasal og hann var ekki mikið notaður samkvæmt starfsmönnum þar. Veggurinn var frekar lítill grjótglímuveggur og með nett yfirhang. Höldurnar voru einnig fremur litlar og hann því ekkert sérstaklega byrjendavænn. Fyrir lengra komna var þetta hins vegar fínasti veggur. Veggurinn hefur hugsanlega verið færður eitthvað annað.

Hægt er að skoða myndir af veggnum hér.

 

Nýr leiðarvísir

Skrifað af: jbb Mánudagur, 27. júní 2011 23:24

Fyrsti steinninn var settur niður í dag í nýja Hnappavallaleiðarvísinn sem verið er að vinna í. Leiðarvísirinn er sá þriðji í röðinni af þessari grjótglímu leiðarvísa syrpu og fær hann nafnið "Hnappavellir Boulder". Leiðarvísirinn verður í sama þema og þeir fyrri, nú með grænt litaþema.

 

Fyrsti steinn í HádegishamriUm 120 klifurleiðir og project hafa verið skráð niður en vonast er til að fjöldi þeirra verði í um 140 - 160 þegar leiðarvísirinn verður gefinn út.  Ekki er vitað með vissu hvenær leiðarvísirinn verður gefinn út, mikil vinna liggur fyrir höndum, en það verður líklegast í lok sumars eða í haust. Þetta verður þá stærsti grjótglímu leiðarvísirinn sem gefinn hefur verið út á Íslandi.

 

Ný leið á Hnappavöllum

Skrifað af: amó Sunnudagur, 26. júní 2011 19:52

Ný leið hefur verið boltuð á Hnappavöllum. Leiðin er staðsett í Hádegishamri, og er hægra megin við hina alræmdu og óklifruðu leið Föðurlandið. Þessar leiðir er ekki að finna í Hnappavallaleiðarvísinum þar sem þær eru báðar boltaðar eftir útgáfu hans en þær eru hægra megin við Litlu Lúmsku Leiðina.

 

Heiðurinn af leiðinni eiga þeir Jósef Sigurðsson og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson en þeir boltuðu hana nú um helgina og hafa gefið henni nafnið Herra Alheimur. Gráða leiðarinnar hefur enn ekki verið fest, en hún mun vera eitthvað um 5.10a.

 

Einnig er rétt að minnast á það að þessa sömu helgi klifraði Egill Örn Sigþórsson Fantasíu 5.13a (7c+) og Jósef fór Hláturhúsið 5.12b (7b) sem er stórglæsilegt.

 

Nordic Youth Camp í Finnlandi

Skrifað af: ÁMS Laugardagur, 25. júní 2011 13:14

Nú hefur hópur ungra og efnilegra klifrara lagt land undir fót og haldið til Turku í Finnlandi.  Klifrararnir taka þátt í Nordic Youth Camp sem eru norrænar klifurbúðir haldnar árlega. Í búðunum verður áhersla lögð á sportklifur og grjótglímu, bæði úti og inni.
Hægt er að fylgjast með hópnum á facebook  en búðirnar standa yfir dagana 26.06.2011-02.07.2011;

http://www.facebook.com/group.php?gid=105724649483067

Við óskum þeim góðrar ferðar og góðs gengis !

 

Í þessu samhengi er vert að minnast á að erfiðasta leið Finnlands, Syncro 8c, sem var klifruð af Tomi Nytrop fyrstum manna árið 2006 var klifruð aftur. Samkvæmt síðunni http://27crags.com/ var það þýski klifrarinn Christian Bindhammer sem endurtók leikinn fyrir tveim dögum eða þann 23. Júní 2011 og telur hann leiðina jafnvel bera gráðuna 8c+.

 

Af sportklifri og Hnappavöllum..

Skrifað af: ÁMS Laugardagur, 18. júní 2011 12:40

HnappavallakortEflaust hafa þónokkrir velt fyrir sér hvaða leið sé í Pöstinni lengst til vinstri en nefnist hún Vippan og henni hefur verið gefin gráðan 5.11b. Kristín Martha Hákonardóttir á heiðurinn af boltun hennar.


Annars er vert að benda á nýtt fyrirkomulag kamars-, bolta- og tóftarsjóðs Hnappavalla. Nú er öllum þeim klifrurum sem ætla að nýta sér svæðið bent á að fjárfesta í Hnappavallakortinu.

Það fæst í Klifurhúsinu og kostar 1000 krónur. Einnig er hægt að greiða með millifærslu á reikning 111-26-503810 kt:410302-3810 Skýring: Kamar.

Meðfylgjandi er mynd af þessu glæsilega korti.

 

Afrek frá Rodellar

Skrifað af: amó Föstudagur, 17. júní 2011 17:20

Félagarnir Kristján Þór, Egill Örn og Jósef komu á dögunum heim frá klifurferð til Rodellar á Spáni.

 

Slys í Valshamri

Skrifað af: ÞS Mánudagur, 30. maí 2011 21:56

Um síðustu helgi (29 maí.) varð slys í Valshamri þegar klifrari féll frá toppakkeri úr leið þrjú, Stóplægt. Mér finnst réttast að benda á grein inn á vef ÍsAlp sem segir frá því hvað gerðist sem víti til varnaðar og svo aðrir megi læra af þessu.

 

Í mjög stuttu máli ætlaði klifrari að síga úr akkerinu en tekur líkegast í karabínuna og opnar hana með þeim afleiðingum að línan klippist úr. Við það fellur hún og lendir á undirrituðum sem ætlaði tryggja hana neðan frá.

 

Klifrarinn slapp ótrúlega vel frá fallinu og gekk sjálf niður hlíðina að bílastæðinu þaðan sem henni var keyrt á næsta sjúkrahús. Hún er undir eftirliti en ekki illa slösuð.

 

Glænýtt myndband úr Jósepsdal

Skrifað af: jbb Mánudagur, 30. maí 2011 21:13

Vinur okkar Jonatan Van Hove hefur sett saman annað klifurmyndband en hann er sá sem setti saman myndbandið af steininum hjá Munkaþverá.

Það er alltaf hressandi að skella sér í Jósepsdalinn. Ef þið eruð að hugsa um að kíkja er gott að hafa í huga að til þess að komast alla leið þar helst að vera á jeppa eða á þokkalega háum bíl. Það er hægt að komast að brekkunni sem fer upp og inn í dalinn en það er ekki ráðlagt að fara lengra á fólksbíl. Það kemur smá slæmur kafli snemma á veginum hjá krossbrautinni en þar er hægt að fara út af veginum til vinstri á aðeins betri slóða.

 

 

 

Steinn við Munkaþverá

Skrifað af: ÁMS Fimmtudagur, 26. maí 2011 00:25

Grjótglíma við MunkaþveráJonatan ásamt fríðu föruneyti hefur hreinsað stein við Munkaþverá og segir hann steininn vera góðan, að á honum séu gæðaleiðir og í kringum hann góð lending. Þau fundu um 10 leiðir á steininum og er mynd af honum meðfylgjandi.

 

Við þökkum þeim kærlega fyrir lofsvert framtak og hvetjum alla til að senda inn upplýsingar um klifur víðsvegar um landið.

 

 

 

Eldgos og aska

Skrifað af: ÁMS Sunnudagur, 22. maí 2011 14:08

Að sögn bænda á Hnappavöllum er grátt yfirlitum og mistur í lofti. Skyggnið er um 1,5 km og vindur þó nokkur.  Aðstæður eru ekki eins slæmar og á milli Klausturs og Freysnes. Ekki er vitað til þess að klifrarar hafi verið á staðnum þegar eldgosið hófst en flugbjörgunarsveit var þar við æfingar. Það má búast við áhrifum eldgossins í einhvern tíma og hugsast getur að klifrarar eyði sumrinu í að blása burt ösku úr klifurleiðum en við vonum auðvitað hið besta.

 

Annnars fór sumarið á Hnappavöllum vel af stað og um síðustu helgi voru þar um 12 manns.

 

Klifursvæði

Skrifað af: ÁMS Þriðjudagur, 10. maí 2011 21:51

Nú þegar sumarið er gengið í garð og klifrarar víðsvegar um landið flykkjast á hin ýmsu klifursvæði er vert að hafa í huga nokkrar almennar umgengnisreglur :

 

-Við skiljum við svæðið eins og við komum að því. Allt rusl er tekið með til byggða og ekkert skilið eftir.


-Í samskiptum við landeigendur skal kurteisi vera í hávegum höfð.


-Forðast skal í lengstu lög að raska umhverfi og ásjónu svæðanna.

 

Áður en haldið er á ný svæði er ráðlegt að kynna sér hvort einhverjar sérstakar umgengnisreglur eigi við á viðkomandi svæði.

 Þetta ætti að stuðla að áframhaldandi aðgangi að klifursvæðum landsins.

 

Góðar stundir og gleðilegt KLIFURsumar!

 

 

 

Síðasta klifurmótið í Klifurhúsinu

Skrifað af: jbb Miðvikudagur, 30. mars 2011 21:08

Eins og flest vita er 4. og síðasta klifurmót vetrarins næsta sunnudag sem er 3. apríl. Klifurmótið er auðvitað haldið í Klifurhúsinu.

 

Mótið fyrir yngri krakkana (12 ára og yngri) byrjar 14:00 og stendur í eina klukkustund. Þegar því móti er lokið byrjar mót fyrir eldra fólkið og það mót stendur yfir í tvær klukkustundir.

 

Sumar & klifur

Skrifað af: vb Þriðjudagur, 15. mars 2011 17:58

Nú er mann aldeilis farið að lengja í sumarið og ef segja má, þá er nú stutt í að það fari að vora. Já, við vitum það öll að vorið er rétt handan við hornið, vorið er í loftinu.

 

Yfirleitt er útiklifurtíðin byrjuð þegar páskafríið hefst. Nú er það líka víst að ef maður virkilega vill komast í útiklifur þá er það hægt, svo snemma sem í mars. Ef ég segi sjálfur frá þá var ein besta helgin sem ég hef átt á Hnappavöllum einnmit í mars. Allt var á kafi í snjó en sólin var uppi, það var heiðskírt og logn. Þessir aðstæður voru einstakar fyrir gott klifur...Meira

 

 

Skógurinn á Reykjanesi

Skrifað af: jbb Fimmtudagur, 03. mars 2011 17:11

Valdimar hefur sett saman enn eitt klifurmyndbandið. Í þessu myndbandi sem heitir "Svanurinn, Háibjalli" erum við Valdi að prófa í fyrsta skifti að klifra á þessum skemmtilega steini við Háabjalla á Reykjanesinu. Steinninn var vel mosavaxinn og við gáfum okkur góðan tíma í að þrífa steininn. 

 

Í byrjun reyndum við að klifra leið sem liggur upp miðjan steininn. Leiðin er í nettu yfirhangi og fer upp slópera og lítil grip. Sú lína er ennþá óklifruð. Svanurinn 6b, fer aðeins til hægri og endar í langri hreyfingu upp á brún í flottan vasa.

 

Á steininum eru einnig Funky Joe 6a+ og Litlu flugurnar 6a.

 

 

 

Miðskjól trilogy

Skrifað af: vb Miðvikudagur, 02. mars 2011 13:21

Miðskjól er klifursvæðið sem er nærst tjaldsvæðinu á Hnappavöllum. Þar er að finna um 37 sportleiðir og heilan helling af boulderi. Þetta myndband var tekið í fyrra.

 

 

Flosalaug í Svínafelli

Skrifað af: vb Miðvikudagur, 02. mars 2011 13:11

Bæjarráð Hornfjarðar og rekstraraðilar sorpbrennslustöðvarinnar í Svínafelli í Öræfum hafa ákveðið að hætta starfseminnni vegna umræðu um díoxíð mengun sem stafar af sorpbrennslum. 

 

Flosalaug sem við böðum okkur í eftir langan klifurdag verður jafnframt lokað. Sorpbrennslustöðin Brennu-Flosi í Svínafelli í Öræfum hefur starfað frá árinu 1993. Samhliðauppbyggingu brennsluofnsins byggði fjölskyldan í Svínafelli 1 sundlaugina Flosalaug sem hituð var með orku frá brennsluofninum. 

 

Nú er næsta bað frá Hnappavöllum á Kirkjubæjarklaustri eða austar hjá Hoffellsjökli en þar er að finna fjóra heitapotta sem hitaðir eru af heitu vatni sem kemur úr gamalli rannsóknarborholu. Svo má nefna að það er slík hola sem dælir upp endalausu heitu vatni í Skaftafelli. Spurningin er bara hvenær þeir ætla sér að gera einhverja aðstöðu svo að klifrarar geta aftur legið í heitu vatni eftir góðan klifurdag á völlunum. 

 

http://www.mbl.is/frettir/forsida/2011/03/01/loka_sorpbrennslustodinni_i_oraefum/

 

Félagarnir í Kjuge

Skrifað af: jbb Föstudagur, 25. febrúar 2011 19:11

Benjamin Mokri setti saman video frá ferð sem hann fór með Valdimar Björnsson til Kjuge í Svíþjóð í september, 2010. Valdi hitti Benjamin heima hjá honum í Kaupmannahöfn og svo keyrðu þeir yfir í Kjuge þar sem þeir klifruðu í tvo daga.

 

Valdimar segir að svæðið hafi verið miklu betra en hann átti von á og stefnir á að fara þangað aftur í apríl næstkomandi.

 

 

Þriðja mót vetrarins

Skrifað af: jbb Sunnudagur, 23. janúar 2011 21:18

Kjartan klifrar á nýmáluðum veggnumÞriðja klifurmót vetrarins var haldið í Klifurhúsinu í dag. Mótið var með hefðbundnu sniði, 20 klifurleiðir og tvær klukkustundir, 25 klifurleiðir og ein klukkustund fyrir 12 ára og yngri. Á mótinu voru ný grip sem Klifurhúsið er nýbúið að fá í styrk. Fótfesturnar (skrúfuðu festurnar) hafa eflaust ekki farið fram hjá neinum, neon gul og rauð. Höldurnar voru einnig flottar og yndislega gróf.

Fólk var ánægt með leiðirnar og mótið heppnaðist vel. Mótsstjóri var Eyþór Konráðsson og fékk hann hjálp frá Kristó, Valda og Jósef við að setja upp leiðirnar.

Myndir frá mótinu eru komnar á fésbókina.

Smellið á "Nánar" til að sjá úrslit mótsins.
 

Klifur annáll 2010

Skrifað af: áms Föstudagur, 14. janúar 2011 22:03

Hróðmar klifrar Magic Mouse 6cMargt aðdáunarvert hefur gerst í klettaklifri  hér á fróni en einnig voru unnin nokkur klettaklifurafrek fyrir utan landsteinanna. Farið var til El Chorro um jólin 2009 þar sem Jónas Grétar Sigurðsson, Andri Már Ómarsson, Heiðar Þór Jónsson og Eyþór Konráðsson klifruðu allir leiðina Eye of the Storm sem ber gráðuna 7c.  Félagarnir Kristján Þór Björnsson og Hjalti Andrés héldu til Kjugekull í Svíþjóð og klifraði Kristján þar þrautina Lithium 7c+-8a...

 

 

Stórgrýti við Gígjökul

Skrifað af: jbb Mánudagur, 10. janúar 2011 23:05

Mikil skriða varð við Gígjökul þegar vatn braust niður úr Eyjafjallajökli eftir að eldgosið hófst. Úr skriðunni komu margir tröllvaxnir steinar og voru klifrarar mjög spenntir yfir að fara að skoða þá og sjá hvort þeir væru klifurhæfir.

Félagarnir Valdimar Björnsson og Benjamin Mokry skruppu fyrir skömmu suður og skoðuðu steinana. Steinarnir eru stórir og mikilfenglegir en þeir henta ekki vel til klettaklifurs. "Hjá steinunum er fullkomin lending, alveg slétt og ekki stórgrýtt" sagði Valdi. "Bergið var hins vegar svolítil vonbrigði, laust í sér og auðvelt að brjóta höldurnar úr því, ekki ósvipað berginu í steinunum í Stóruskriðu við Dyrfjöll á austurlandi". Aðkoman að svæðinu var góð og mjög gaman að skoða svæðið þó svo að ekki hafi verið mikið klifrað. Félagarnir vara þó við kviksyndum á svæðinu og voru því heldur fengnir að frost var í jörðu.

Gígjökull er einn af tveimur skriðjöklum sem falla úr Eyjafjallajökli og skríða þeir norður í Þórsmörkina. Hinn skriðjökullinn heitir Steinholtsjökull.

 

 
Klifur.is ©