Ósfell

Ósfell er grjótglímusvæði nálægt Hólmavík. Í kringum Hólmavík liggja mörg klettabelti en úr einu þeirra fyrir neðan Ósfell hafa nokkrir flottir steinar hrunið úr og myndað þetta ágæta klifursvæði. Bergið hentar mjög vel til klifurs og lendingarnar eru yfirleytt mjög fínar.

Steinarnir eru sumir hverjir mjög flottir, sérstaklega einn sem er áberandi stór steinn ofarlega á svæðinu sem hefur rúllað hvað lengst frá klettabeltinu. Allar hliðar steinsins eru yfirhangandi og á honum hafa verið klifraðir nokkrir mjög flottir probbar. Steinnin hefur stundum verið kallaður Rósin vegna þess hvernig hann er í laginu.

Hafið í huga að klifursvæðið er inni á landi fólksins í Ós og skulum við því vera tillitssöm og ganga einstaklega vel um svæðið.

Directions

Um 3 km. norðan við Hólmavíkurafleggjara er ekið yfir Ósáarbrú og svo beint til vinstri á malarveg. Ganga þarf svo um 700 metra til að komast að klifursvæðinu. Athugið að ganga þarf upp fyrir fyrsta klifurbeltið til að komast á flottasta svæðið.

Hnit svæði 1: 65° 44.095'N, 21° 41.542'W
Hnit svæði 2: 65° 43.956'N, 21° 41.588'W

Map

Leave a Reply

Skip to toolbar